FH - Kefla­vík 2-1 | Fjar­lægjast fallsætin

Smári Jökull Jónsson skrifar
FH er hægt og rólega búið að hífa sig upp í Bestu deild karla.
FH er hægt og rólega búið að hífa sig upp í Bestu deild karla. Guðmundur/Vísir

FH vann dýrmætan 2-1 sigur gegn Keflavík í 21. umferð Bestu deildar karla í fótbolta, í Kaplakrika í kvöld, þrátt fyrir að hafa lent undir.

Það var gaman að sjá þegar leikmenn og dómarar gengu inn á völlinn fyrir leik. Allir voru þeir klæddir sínum uppáhalds fótboltatreyjum en uppátækið er hluti af styrktarverkefni fyrir börn með krabbamein.

Leikurinn var fremur rólegur til að byrja með en Keflavík þó sterkari aðilinn lengi vel í fyrri hálfleik. Tómas Orri Róbertsson í FH hafði komist næst því að skora með góðu skoti fyrir utan teiginn en það var Stefán Ljubicic sem skoraði fyrsta markið, einmitt með góðu skoti fyrir utan teig sem Jökull náði ekki að verja.

FH-ingar vildu fá aukaspyrnu í aðdraganda marksins en fengu ekki og staðan orðin 1-0.

Það tók heimamenn hins vegar ekki langan tíma að jafna. Það gerði Gils Gíslason með frábæru skoti eftir að Erlingur Agnarsson potaði boltanum til hans í teignum.

Þegar liðin komu síðan út eftir hálfleikinn var eins og Keflvíkingar væru ekki með meðvitund. FH tók yfirhöndina og á 52. mínútu skoraði Kjartan Kári Halldórsson með skalla eftir frábæran undirbúning Gils.

FH hélt áfram að hamra á Keflvíkingum og fengu nokkra góða sénsa til að bæta þriðja markinu við.

Haraldur Guðmundsson þjálfari gestanna skellti í þrefalda skiptingu en hún hafði ekki mikil áhrif og varamenn FH, en þeir Guðmundur Andri Tryggvason og Arnór Borg Guðjohnsen, sköpuðu hins vegar í nokkur skipti hættu hinu megin eftir að þeir komu inn af bekknum. 

Á þessum tíma var Ásgeir Orri í marki Keflavíkur einfaldlega að halda þeim inni í leiknum.

Síðustu tíu mínúturnar náðu Keflvíkingar að setja smá pressu á FH-liðið. Þeir sköpuðu sér hins vegar engin færi og FH náði að sigla sigrinum í höfn á nokkuð þægilegan hátt.

Lokatölur 2-1 og Keflavík gæti verið á leið í úrslitaleik gegn Val í síðustu umferð deildakeppninnar um sæti í efri hlutanum. Með sigrinum nær FH hins vegar að skapa sér smá andrými í botnbaráttunni.

Atvik leiksins

Upphafsflautið í síðari hálfleik virðist hafa farið illa í Keflvíkinga. Hvort Helgi Mikael hafi flautað sérstaklega hátt veit ég ekki en það kviknaði neisti hjá FH-ingum á meðan Keflvíkingar voru heillum horfnir.

Markið í byrjun seinni hálfleiks kom á góðum tíma fyrir FH og var sem olía á eldinn í framhaldinu og þeir í raun óheppnir að bæta ekki við fleiri mörkum strax í kjölfarið.

Stjörnur og skúrkar

Gils Gíslason skoraði mark og lagði upp annað, virkilega gott framlag þar. Lánsmaðurinn frá Víkingum Erlingur Agnarsson færir FH-liðinu mikil gæði og þeir Oliver Stefánsson og Ísak Óli Ólafsson í miðri vörn FH voru góðir.

Hjá Keflavík var Ásgeir Orri í markinu heilt yfir góður og bjaragði þeim nokkrum sinnum í seinni hálfleik. Muhamed Alghoul var góður í fyrri hálfleik en sást lítið í þeim seinni,  líkt og mætti segja um nánast alla leikmenn Keflavíkur.

Dómarinn

Helgi Mikael átti ágætan leik. FH-ingar voru ósáttir eftir mark Keflavíkur en Helgi virðist hafa metið það þannig að fyrst hafi FH-ingurinn Oliver Stefánsson brotið af sér áður en Stefan Ljubicic gerði það. Þegar Stefan náði svo boltanum var hagnaði beitt og stutt seinna söng boltinn í netinu.

Helgi Mikael spjaldaði Adolf Daða Birgisson fyrir dýfu sem mér fannst harður dómur en annars var hann með ágæt tök á leiknum.

Stemmning og umgjörð

Það voru 667 áhorfendur mættir í Kaplakrika og menn létu aðeins heyra í sér þó lætin hafi nú ekki verið mikil í stúkunni. 

Umgjörðin hjá FH flott og það var mjög gaman að sjá allar mismundandi treyjurnar í upphafi leiks og vonandi að það takist á vekja athygli á málefninu sem verkefnið snýst um því það er svo sannarlega mikilvægt.

„Það sem strákarnir komu með inn í seinni hálfleikinn var frábært“

„Við fengum fullt af færum og vorum aggressívir. Það var jafnræði í fyrri hálfleiknum og svolítið fram og til baka. Við fáum á okkur svolítið klaufalegt mark, við héldum að það væri búið að dæma aukaspyrnu en við eigum auðvitað að spila þar til er búið að flauta,“ sagði Jóhannes Karl í viðtali eftir leikinn í kvöld.

FH-ingar jöfnuðu örfáum mínútum eftir að Keflavík komst yfir og það var Jóhannes Karl ánægður með.

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FHVísir/Hulda Margrét

„Þeir komust inn í leikinn en við sýndum samt sem áður karakter að jafna í fyrri hálfleik. Mér fannst við samt sem áður orkulausir og flatir og við ræddum það sérstaklega inni í klefa í hálfleik. Að koma með mikið meiri orku því það eru gæði í þessu liði.“ 

„Það sem strákarnir komu með inn í seinni hálfleikinn var frábært. Við gerum svo skiptingar snemma í seinni hálfleik og þar kemur ennþá meiri orka og mikil gæði, fremstu fjórir hjá okkur voru ekkert eðlilega duglegir allan leikinn að pressa Keflvíkingana og reyna að takmarka að þeir gætu komið góðum boltum fram völlinn. Mér fannst það virka virkilega vel, sérstaklega í seinni hálfleik.“ 

Þá sagði hann að breytingar á taktík og skipulagi beri þó aldrei ánægður nema leikmennirnir séu tilbúnir að gera það sem til þarf.

„Við vorum ekki nógu duglegir að stíga með varnarlínuna í fyrri hálfleik og það skapaði pláss fyrir þá að komast í millisvæðið og í góðar stöður. Við löguðum leikinn taktískt í hálfleik og komum flottir út í seinni hálfleikinn. Það hefur ekkert að segja, taktík eða skipulag, nema leikmennirnir séu tilbúnir að gera það sem þeir gerðu í seinni hálfleik. Vinnan, vinnusemin og orkan og svo koma gæðin í ljós og við vorum óheppnir að skora ekki fleiri mörk.“

Undir lokin færðist leikurinn aðeins yfir á vallarhelming FH án þess að Keflavík næði að skapa alvöru færi.

„Þeir voru farnir að taka meiri sénsa og setja fleiri leikmenn fram, þriðja markið okkar hefði drepið leikinn. Þeir eru hættulegir í föstum leikatriðum og erfitt að eiga við þá. Ég var ekki beint stressaður, mér fannst við verjast vel í öftustu línu. Löngu boltarnir, seinni boltarnir og ég var ekki stressaður.“

Gils Gíslason skoraði og lagði upp í kvöld.

„Frábær, gjörsamlega frábær. Hann er ansi hættulegur og við vitum, og ég held að hann viti það sjálfur, að þó hann hafi lagt upp í dag og skorað að hann getur meira og hann mun bara hægt og rólega verða mikið hættulegri. Hann er öskufljótur og með hörkugæði, það verður stígandi áfram út þetta tímabil hjá honum.“

Í seinni hálfleik fékk Adolf Daði Birgisson gult spjald fyrir dýfu og Jóhannes Karl fór aðeins að hlæja þegar hann var spurður út í það atvik.

„Ég var rosalega langt frá þessu en mér fannst þetta ekki vera dýfa, ekki kannski víti en dýfa full strangt. Dómari leiksins verður bara að meta það,“ sagði Jóhannes Karl að lokum.

Haraldur Freyr: Mjög slakir í seinni hálfleik

Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga var ekki ánægður með frammistöðu síns leiks í síðari hálfleiknum gegn FH í dag.

„Hún var alls ekki góð. Mér fannst við koma mjög slakir út í seinni hálfleik, sérstaklega eftir að þeir skora. Við náðum lítið að tengja saman sendingar, hittum yfirleitt ekki á bláa treyju. Við vinnum ekki návígin og seinni boltinn var ekki að detta fyrir okkur,“ sagði Haraldur eftir leik.

Haraldur Guðmundsson þjálfari KeflavíkurVíkurfréttir

Keflavík skoraði gott mark í fyrri hálfleik en náði lítið sem ekkert að ógna marki FH í seinni hálfleik.

„Við skutum ekkert á markið, ég held við höfum átt eitt skot á markið sem var í fyrri hálfleik og það var mark.“

Hann sagði þó að leikur Keflvíkinga í fyrri hálfleik hafi verið fínn að mörgu leyti.

„Við byrjuðum ágætlega, sköpuðum mark og stöður. Við erum í frábæri upphlaupi hérna vinstra megin þegar við missum boltann og þeir ná að sækja hratt. Við tökum alltaf eitthvað jákvætt úr hverjum leik án þess að ætla að tína það sérstaklega til núna,“ sagði Haraldur að lokum.

Framundan er leikur gegn Val í Keflavík þegar Ljósanótt stendur yfir. Það gæti verið úrslitaleikur um sæti í efri hluta Bestu deildarinnar.

„Við fáum að vera svekktir í kvöld og á morgun og svo er það bara að einbeita sér að næsta leik sem er Valur á Ljósanótt. Við þurfum að gíra okkur upp í þann leik og vonandi verður fullt af fólki.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira