Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 30. ágúst 2026 18:50 Af Skriðuklaustri í Fljótsdal. Magnús Hlynur Hreiðarsson Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps kallar á ráðherra að þrýsta á tafarlausar úrbætur á fjarskiptakerfinu. Alvarlegt vinnuslys varð á bæ í dalnum og ekki tókst að ná sambandi við neyðarlínuna.
Alvarlegt vinnuslys varð á Brekkugerði í Fljótsdal 4. ágúst síðastliðinn þar sem maður fótbrotnaði þegar hestur féll á hann. Sá sem reyndi fyrst að hringja í neyðarlínuna náði ekki í gegn, það heppnaðist þeim sem hringdi næst en þegar neyðarlínan reyndi að hringja til baka í hann tókst það ekki. Fram kemur í umfjöllun Austurfréttar um málið að slysið hafi orðið örfáum dögum eftir að miðillinn fjallaði um lokun 2G og 3G-fjarsímakerfanna. Farsímanotendur um allan fjórðunginn hafi þar haft orð á því að símasamband hefði versnað. Í bókun sveitarstjórnar Fljótsdalshrepp frá síðasta fundi sveitarstjórnar er þungum áhyggjum lýst af stöðu fjarskipta á Austurlandi, að því er fram kemur í umfjöllun Austurfréttar. Vitnað er þar til gagnrýni Neyðarlínunnar um að ekki ætti að fara of geyst í lokunina og því beint til dómsmálaráðherra og innviðaráðherra að þeir þrýsti á um tafarlausar úrbætur. Sveitarstjórnin minnir þó á að ákvörðun um lokunina hafi verið tekin af stjórnendum farsímafyrirtækjanna og þeir skuldi skýringar á því hvers vegna hafi legið á henni, þrátt fyrir upplýsingar um að hún gæti raskað öryggi íbúa. Sveitarstjórnin skorar því á umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis að kalla forstjóra og stjórnarformenn fjarskiptafyrirtækjanna á opinn fund þar sem þeir útskýri ákvarðanir sínar og meti í kjölfarið hvort þörf sé á nýjum lagagreinum í fjarskiptalögum sem tryggja öryggi íbúa og færa auknar skyldur á símafyrirtækin.
Fljótsdalshreppur Fjarskipti Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Sjá meira