Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 30. ágúst 2026 20:12 Hlaupið hefði verið eftir varnargörðunum með byggðina á aðra hönd og nýja hraunið hina. Grindavík Ultra Fyrirhugað utanvegahlaup um Grindavík og nýja hraunið sem fara átti fram um næstu helgi hefur verið aflýst eftir að skipuleggjendum var gert ljóst að ekki mætti hlaupa eftir varnargörðunum við bæinn. Skipuleggjandi hlaupsins segir málið hafa strandað á óvissu um hver fari með eignarhald varnargarðanna og segir niðurstöðuna einkar svekkjandi.
Steinar Atli Skarphéðinsson, skipuleggjandi Grindavík Ultra, segir hlaupið hafa verið unnið fyrir Grindavíkurbæ en hugmyndin hafi verið að gera það að fjáröflunarhlaupi fyrir Ungmennafélag Grindavíkur og björgunarsveitina Þorbjörn. Ungmennafélagið hafi verið skráður hlaupahaldari. Enginn veit hver á garðana Hlaupaleiðin var teiknuð um fjöllin við Grindavík, nýja hraunið og meðal annars eftir hluta varnargarðanna sem reistir hafa verið vegna eldsumbrotanna á Reykjanesskaga. „Síðan fengum við tölvupóst um að við mættum ekki hlaupa á varnargörðum því að þeir væru vinnusvæði,“ segir Steinar. Hann segir óljóst hver eigi að bera ábyrgð á görðunum nú þegar framkvæmdum við þá er lokið eða komið langt á veg. „Menn hafa verið að reyna að finna út úr þessu, hver á þá og hvaða stofnun á að sjá um þá,“ segir hann. Niðurstaðan hafi orðið sú að ekki væri hægt að halda hlaupið eins og það hafði verið skipulagt. Vel tekið í hlaupið Steinar segir önnur leyfismál vegna leiðarinnar ekki hafa valdið vandræðum. Meðal annars hafi Bláa lónið samþykkt að hlaupið færi um land þess og einkaaðilar sem áttu land á fyrirhugaðri leið hefðu einnig tekið vel í málið. „Allir voru bara spenntir fyrir því að þetta yrði svona viðburður, að hlaupa um nýtt landslag,“ segir hann. Því hafi verið sérstaklega svekkjandi að hlaupið skyldi stranda á varnargörðunum. „Það er svona einkar leiðinlegt að eitthvað formsatriði sé það sem fólk hengir sig á.“ Allt annað legið fyrir Steinar segir málið ekki hafa snúist um hættu vegna eldsumbrota eða um hvort yfirhöfuð mætti halda hlaup á svæðinu. Hann bendir á að hlaupararnir hefðu mátt fara með fram varnargörðunum. „Það var enginn að setja út á að við værum að hlaupa í náttúrunni eða að svæðið væri á hættustigi. Það var bara vel tekið en það strandaði á þessu. Við hefðum í rauninni getað hlaupið hliðina á varnargörðunum en við máttum ekki stíga ofan á þá í hlaupaskóm.“ Að hans sögn eru varnargarðarnir breiðir og sléttir og hafi skipuleggjendur meðal annars ekið eftir þeim á björgunarsveitarjeppum við undirbúning hlaupsins. Steinar segir vonbrigðin ekki aðeins hafa verið hjá skipuleggjendum heldur einnig meðal Grindvíkinga. „Það var einn Grindvíkingur sem orðaði það þannig: „Við héldum að við værum komin lengra í endurreisninni, hvað má og hvað má ekki.““ Gæti orðið ein glæsilegasta hlaupaleið landsins Hann segir þó ætlunina alls ekki vera að gefast upp á hlaupinu. Grindavík Ultra gæti að hans mati orðið eitt glæsilegasta utanvegahlaup landsins. Leiðin færi meðal annars um nýtt hraun, Hópsnes og Fagradalsfjall og eftir varnargörðunum sjálfum. „Það er algjörlega stórbrotið að standa ofan á, eða hvað þá hlaupa eftir, varnargarði og horfa á hvernig þeir raunverulega virkuðu. Hraunið glænýtt og svart öðrum megin og hinum megin mannvirkin sem verið var að verja, hvort sem það er bærinn, Svartsengi eða Bláa lónið.“ Ungmennafélag Grindavíkur stefnir nú að því að halda hlaupið næsta sumar. „Það er vonandi að þá verði búið að leysa úr einhverjum svona tæknilegum atriðum,“ segir Steinar. „Það er bara upp og áfram.“
Grindavík Hlaup Varnargarðar á Reykjanesskaga Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira