Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Kári Mímisson skrifar 31. ágúst 2026 18:47 Tyrkland sýndi í kvöld hvers vegna liðið er með fullt hús stiga í undankeppninni. Hulda/Vísir Ísland tók á móti Tyrklandi í undankeppni heimsmeistaramóts karla í körfuknattleik. Ljóst var fyrir leik kvöldsins að andstæðingurinn væri ógnar sterkur en Tyrkir sitja í 11. sæti heimslista FIBA og voru á toppi riðilsins. Það er þó aðeins rúm ár síðan að íslensku strákarnir sigurðu lið og tryggði sig inn á EuroBasket í leiðinni. Því miður fyrir strákana okkar þá náði liðið sér aldrei á strik í dag en Tyrkir unnu sannfærandi sigur 37 stiga sigur, 73-110. Tyrkir gáfu strax tóninn í kvöld en liðið skoraði fyrstu körfu leiksins ásamt því að skora 15 stig gegn einu á upphafs mínútunum. Cedi Osman fór mikinn fyrir Tyrki í fyrsta leikhluta en hann skoraði 15 stig á innan við sjö mínútum en það var meira en allt íslenska liðið gerði í fyrsta leikhluta en íslenska liðið var í miklum vandræðum með að finna leiðir í gegn tyrknesku vörnina. Tyrkir héldu uppteknum hætti í öðrum leikhluta. Liðið skoraði 1.75 stig að meðaltali í hverri sókn gegn innan við einu hjá íslenska liðinu í fyrri hálfleik. Þá munaði miklu um fráköstin en Tyrkir voru með 21 frákast gegn 12 íslenskum þegar flautað var til hálfleiks. Staðan 37-60 í hálfleik. Tyrkirnir siglu þessum sigri svo örugglega í seinni hálfleik án þess að íslenska liðið hafi nokkurn tíman náð að ógna forskoti Tyrkja sem þeim tókst að byggja upp í fyrsta leikhluta. Lokatölur héðan úr Laugardalshöll. 73-110 fyrir Tyrki. Það er ekki oft sem lið mætir hingað í höllina með sex leikmenn sem hafa spilað í NBA deildinni og mögulega sýndu strákarnir okkar full mikla virðingu fyrir því það má alls ekki taka neitt af þessu tyrkneska liði sem spilaði feikilega vel í kvöld og er eitt besta landslið í heiminum þessa stundina. Þessi leikur fer núna í reynslubankann hjá liðinu sem fer núna að undirbúa sig undir fyrir næsta leik gegn Bosníu Hersegóvínu í lok nóvember. Stjörnur og Skúrkar Cedi Osman fór mikinn fyrir Tyrki en það er vissulega ekki að ástæðulausu sem þessi leikmaður lék í NBA deildinni í átta ár. Adem Bona, leikmaður Philadelphia 76s var sterkur í kvöld undir körfunni hjá Tyrkjum og við áttum í miklum vandræðum með hann. Hjá íslenska liðinu voru þeir Martin Hermannsson og Kristinn Pálsson atkvæðamestir með 11 stig. Atvik leiksins Setjum það á tæknivilluna sem Osman náði sér í. Þú ert að vinna með yfir 20 stigum í seinni hálfleik og þarf að gera svona vitleysu. Þótti þetta óttalega asnalegt augnablik. Dómarinn Þeir félagar frá Ítalíu og Lettlandi skiluðu þessu verkefni bara vel frá sér. Ég gat ekkert fundið að þeirra frammistöðu í kvöld en þeir höfðu ekki áhrif á úrslitin hér í kvöld. Stemning og umgjörð Landsleikur í höllinni og vel mætt. Það verður að hrósa umgjörðinni hér í kvöld sem var eins og alltaf upp á tíu. Bæði lið voru vel studd hér í kvöld. Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta