Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Magnús Jochum Pálsson skrifar 1. september 2026 15:14 Andarnefjan er illa stödd eftir að hafa verið landreka á Djúpavogi síðan í morgun. Andarnefja varð innlyksa í háflóði á Djúpavogi í morgun, rak á land í Brandsvík og hefur verið föst þar síðan. Íbúar hafa staðið í ströngu við að ausa yfir andarnefjuna sjó og standa vonir til að hún komi sér sjálf út í flóði. Um tíma virtist hvalurinn of örmagna til að bjarga sér sjálfur en er byrjuð að sprikla. „
Við erum tvö í hvalabjörgunarsveit Djúpavogs, nýstofnaðri,“ segir Íris Birgisdóttir, æðarbóndi á Djúpavogi, í samtali við fréttastofu. Íris hefur verið niðri í fjöru í Brandsvík á sunnanverðumDjúpavogi síðan í morgun ásamt sjómanninum Bjarti Elí Egilssyni við að reyna að bjarga fimm metra langri andarnefju sem rak þar á land. „Það var sjómaður sem varð var við hana hérna í fjörunni. Það hefur verið háflóð klukkan sex í morgun og við reiknum með því að hvalurinn hafi orðið innlyksa þegar það fór að fjara aftur,“ segir hún. Andarnefjuna rak á land í morgun. „Ákváðum að gera það sem við gátum“ „Það tók svo langan tíma fyrir alla aðila sem þurfa að koma að málinu þegar svona gerist, MAST, heilbrigðiseftirlitið og Náttúrufræðistofnun, að við vorum tvö sem ákváðum að þar til það væri hægt að taka ákvörðun þá myndum við reyna að láta dýrinu líða sem best,“ segir Íris. Íbúar á Djúpavogi hafa reynt að halda hvalnum rökum. „Það var sól og við ákváðum að gera það sem við gátum, halda hvalnum rökum og ausa yfir hann vatni.“ Þau hafi meðal annars lagt yfir hvalinn blaut handklæði til að hann þornaði ekki. Þegar blaðamaður ræddi við Íris um tvöleytið var útlitið ekki sérlega bjart og bærði andarnefjan sig varla nokkuð. „Við erum komin upp úr fjörunni núna því það er reiknað með að hún reyni einhvern bægslagang til að koma sér út,“ segir Íris. Lögreglan á Djúpavogi er á vettvangi og stýrir þar aðgerðum meðan hvalurinn er enn í fjörunni. Vonir standa til að hún geti komið sér sjálf aftur út á sjó. „Dýralæknirinn kom svo og mat aðstæður þannig að það mætti alveg athuga hvort hún myndi reyna að koma sér sjalf út þegar það færi að flæða aftur,“ segir Íris. Ástand andarnefjunnar liggi ekki skýrt fyrir og erfitt að meta nákvæmlega líðan hennar eða áverka en á annarri hlið hennar má sjá þónokkuð blóð. Næst sé að taka ákvörðun um hvort eigi að bjarga hvalnum eða lina þjáningar hans. Sjó ausið á andarnefjuna. „Það er eiginlega verið að taka ákvörðun um það núna hvort hin raunverulega björgunarsveit, björgunarsveitin Bára, muni reyna að leiða hana út, hvernig svosem það er gert,“ segir Íris og bætir við: „Mögulega mun hún þurfa að deyja drottni sínum úr þessu eða þá hún fær aðstoð við það, svo hún kveljist ekki.“ Blaðamaður hringdi aftur í Írisi um þrjúleytið til að athuga stöðu mála og hafði andarnefjan þá náð að komast út á sjó en rekið í kjölfarið aftur á land. „Hún synti út, tók smá hring fyrir framan fjöruna og rak svo aftur á land. Við vitum ekki hvort hún er bara búin á því eða búin að geispa golunni,“ sagði Íris þegar blaðamaður náði af henni tali.
Hvalir Múlaþing Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ Sjá meira