Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 6. september 2026 15:13 Brynjar segir fólk hafa haft orð á því hve gaman væri að sjá íslenska fánann blakta víða við hús í sumar. aðsend Gríðarleg aukning hefur orðið í sölu á íslenska fánanum og fánastöngum eftir að lagabreyting átti sér stað á Alþingi. Framkvæmdastjóri Íslandshúsa segir fólk hafa orð á því hve gaman var að sjá íslenska fánann blakta víða í sumar.
Eftir að fánalögum var breytt á Alþingi í vor mátti íslenski fáninn blakta á húni allan sólarhringinn frá 1. maí til 15. ágúst, en fyrir breytinguna mátti fáninn ekki vera uppi á nóttunni. Flaggstangir og fánar eru seld víða, meðal annars hjá Íslandshúsi. Framkvæmdastjórinn, Brynjar Húnfjörð, segir að breyting hafi orðið í sölu á fánastöngum og undirstöðum fljótlega eftir lagabreytinguna. „Við finnum raunverulega fyrir gríðarlegri aukningu. Bæði í sölu á stöngum og undirstöðum og líka bara fyrirspurnum þar sem fólk er að pæla hvernig stangir passa og annað.“ Eftirspurnin var raunar svo mikil að þau hjá Íslandshúsum þurftu að stækka lagerinn og ákváðu um leið að auka úrvalið. „Við fórum að kortleggja þetta betur hjá okkur. Íslendingar vilja helst hringja á einn stað til að fá allt og við ákváðum að svara þeirri þörf.“ Ákveðin stemning Hann segir að fólk hafi haft orð á því við komuna í verslunina hve gaman væri að fá að flagga íslenska fánanum við heimili sín í ríkari mæli. „Almennt hefur þetta verið gríðarlega jákvætt og fólk ánægt með þessar breytingar. Fólki finnst gaman að sjá flöggin þegar það keyrir um bæinn og það er komin ákveðin stemning fyrir þessu má segja.“ Nú er aftur óheimilt að flagga fánanum á nóttunni. „Maður þurfti aðeins að minna sig á að þetta væri hægt og þá kom strax upp sú staða að maður var ekki að flagga á daginn því það þarf að taka hann niður. Án þess að hafa svakalega miklar skoðanir á þessu og pælt mikið í þessu þá fannst mér þetta skemmtileg tilbreyting að sjá íslenska fánann blakta.“
Íslenski fáninn Alþingi Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira