„Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Stefán Árni Pálsson skrifar 3. september 2026 14:17 Ágúst Jóhannsson gerði Val að Íslandsmeisturum í vor. Vísir/Ívar „Leikurinn leggst bara vel í okkur og menn eru spenntir að byrja. Við erum búnir að æfa vel í sumar og það eru bara allir í góðu standi og tilbúnir í leikinn. Við erum auðvitað að mæta mjög ungu og spræku liði Selfoss sem er eiginlega mjög sterkt á heimavelli, þannig að við erum að fara austur fyrir fjall og undirbúa okkur bara fyrir mjög krefjandi verkefni,“ segir Ágúst Jóhannsson þjálfari Íslandsmeistara Vals í handbolta, í samtali við Vísi.
Olís-deild karla hefst í kvöld með tveimur leikjum, Selfoss – Valur og HK-KA. Valsliðið hefur misst töluvert af leikmönnum eftir síðasta tímabil en þrír reynsluboltar lögðu skóna á hilluna, þeir Magnús Óli Magnússon, Róbert Aron Hostert og Agnar Smári Jónsson. „Núna eru bara leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu við þetta. Margir eldri leikmenn sem lögðu skóna á hilluna og svo fór Dagur Árni [Heimisson] aftur norður þannig að við höfum misst svolítið sterka pósta en að sama skapi höfum við líka fengið bara góða menn inn, bæði Jón Ásgeir og Tjörva sem hafa verið mjög öflugir eftir að báðir línumennirnir okkar fóru. Þannig að við höfum alveg fengið líka fínar styrkingar.“ Hann segir að ungir leikmenn í Val séu einnig að banka allhressilega á dyrnar að fá sín tækifæri. „Þeir fá enn stærra hlutverk í betur. Þannig að við höfum bara fulla trú á þessum leikmannahópi og það verður nóg að gera og mikið af leikjum. Við erum að fara í Evrópudeildina og það er bara spennandi tímabil fram undan.“ Valur vann deildarkeppnina á síðasta tímabili. Að lokum fór það svo að hreinn úrslitaleikur við FH varð niðurstaðan í úrslitakeppninni og þá var Valur með oddaleikinn á heimavelli. „Auðvitað fengum við þennan fimmta leik sem skiptir bara gríðarlega miklu máli, það segir sig sjálft, bæði handboltalega og ekki síður fjárhagslega fyrir félagið, þannig að menn mega ekki vanmeta deildina og koma sér í sem besta sæti þar. Nú er þetta spilað líka með breyttu fyrirkomulagi sem verður mjög spennandi.“
Olís-deild karla Valur Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Formúla 1 Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Formúla 1 Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Fótbolti Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Enski boltinn Fleiri fréttir Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Eyjakonur unnu opnunarleikinn Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur „Var ekki langt frá því að tárast“ Sá besti í ham en meistarar Vals þurftu að hafa fyrir sigrinum Fullkomin byrjun eftir heimkomu Dags Árna Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Haukur var markahæsti leikmaður síns liðs í naumu tapi Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Sjá meira