Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Lovísa Arnardóttir skrifar 4. september 2026 07:55 Hlutföllin eru ólík á Mercator kortinu, til vinstri, og Equal Earth kortinu, til hægri. Vísir/Getty og Equal Earth Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna mun greiða atkvæði í dag um ályktun sem felur í sér að fólk hætti formlega að nota hið hefðbundna Mercator-kort af jörðinni og taki þess í stað upp kort sem sýnir stærð Afríku með nákvæmari hætti.
Í frétt Guardian segir að Robert Dussey, utanríkisráðherra Tógó, hafi sagt að Tógó hefði lagt ályktunina fram og að hún njóti stuðnings frá hinum 54 aðildarríkjum Sambands Afríkuríkja. Heimskortið byggt á Mercator-kortinu. Vísir/Getty Kortið var kynnt af flæmska kortagerðarmanninum Gerardus Mercator árið 1569 til að auðvelda sjómönnum að sigla um höfin. Tæpum fimm öldum síðar er það enn alþjóðlegur staðall. Vegna þess hve kortið er útfært virðast svæði nálægt miðbaugi miklu minni en þau eru í raun, á meðan svæði á hærri breiddargráðum virðast mun stærri. Kortið er að finna í kennslubókum og á plakötum. Þó svo að ályktanir allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna séu ekki bindandi fyrir allar þjóðir segir í frétt Guardian að verði ályktun samþykkt gæti hún leitt til breytinga á kennsluefni í skólum og þeirri tækni sem fólk notar dagsdaglega, enda er Mercator-vörpunin víða notuð í menntun, tækni og stjórnsýslu. Munurinn á kortavörpununum. Afríka fjórtán sinnum stærri en Grænland Á kortinu virðist Afríka til dæmis svipuð að stærð og Grænland, en Afríka er í raun 14 sinnum stærri en danska landsvæðið. „Hægt væri að koma Bandaríkjunum, Kína, Indlandi, Japan, Mexíkó og stórum hluta Evrópu fyrir í Afríku og samt yrði eftir laust land,“ segir í undirskriftasöfnun á Change.org vegna herferðarinnar #CorrectTheMap, en rúmlega ellefu þúsund hafa skrifað undir hana. Í frétt Guardian segir að Samband Afríkuríkja hafi lýst yfir stuðningi við herferðina í fyrra og beðið Tógó að leiða hana. I am pleased to announce the Equal Earth physical map centered on Florence (11E), which sensibly divides the world in the Bering Strait. Language options include English, French, and German. Get it for free: https://t.co/ssN3A8goQ8 pic.twitter.com/WcYzfy2Ds9— Tom Patterson (@MtnMapper) March 27, 2024 Í frétt Guardian er útskýrt að sagnfræðingar og landfræðingar hafi um árabil bent á að Mercator-vörpunin sé mótuð af vestrænum staðalímyndum. Aðgerðasinnar hafa tekið undir það og sumir hafa jafnvel notað hugtakið „kortaleg nýlendustefna“ og að Mercator-kortið hafi mótað alþjóðlegt valdajafnvægi með því að draga úr sýnilegri stærð og stöðu hnattræna suðursins og ýkja sjónrænt umfang ríkja á norðurhveli jarðar, á sama tíma og svæði nálægt miðbaug eru smækkuð. Þetta hafi, að þeirra mati, ýtt undir kerfisbundna slagsíðu í alþjóðaviðskiptum og forgangsröðun í þróunar- og menntamálum. Einn þekktasti gagnrýnandi Mercator-vörpunarinnar var þýski sagnfræðingurinn Arno Peters, sem kynnti árið 1973 heimskort byggt á Gall-Peters-vörpuninni. Það hefur oft verið notað sem valkostur við Mercator-kortið. Herferð Tógó, #CorrectTheMap, hvetur til þess að notuð verði nákvæmari landakort Equal Earth, sem þróuð var árið 2018 af alþjóðlegum hópi kortagerðarmanna. Stuðningsmenn hennar segja að hún geti hjálpað til við að breyta viðhorfum til Afríku. Fari á sama veg og atkvæðagreiðsla um þrælaverslun Stjórnvöld í Tógó vonast til að atkvæðagreiðslan verði samþykkt með miklum meirihluta líkt og ályktun sem Gana lagði fram í mars um að lýsa þrælaverslun sem „alvarlegasta glæp gegn mannkyninu“. Alls greiddu 123 ríki atkvæði með henni, þrjú ríki voru á móti og 52 sátu hjá. Ríkisstjórn Tógó hyggst halda viðburð í Lomé, höfuðborg Tógó, ásamt UNESCO, Afríkusambandinu og tæknifyrirtækjum á borð við Google Maps á fyrsta ársfjórðungi næsta árs, þar sem farið verður yfir hvernig hrinda megi ályktuninni í framkvæmd, verði hún samþykkt.
Sameinuðu þjóðirnar Tógó Landamæri Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Sjá meira