Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra skaut föstum skotum að leiðtogum sem virða alþjóðalög að vettugi í ávarpi Íslands á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Hún beindi orðum sínum jafnframt sérstaklega að Benjamín Netanjahú og ummælum hans um „siðferðislega hugleysingja“ og sagði þá nafnbót frekar eiga við leiðtoga sem neita að semja um frið, hindra mannúðaraðstoð og gera lítið úr alþjóðalögum. Innlent 26.9.2026 18:34
Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Íranir lögðu fram tillögu að samkomulagi við Bandaríkin um opnun Hormússunds innan við viku með milligöngu Katar. Bandaríkjaforseti er sagður hafa hafnað tillögunni. Erlent 26.9.2026 08:33
Frægt fólk meðal handtekinna í New York Yfir eitt hundrað voru handteknir á fjölmennum mótmælum í New York í gær í tengslum við ræðu Benjamins Netanyahu forsætisráðherra Ísraels á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Þekktir einstaklingar voru á meðal þeirra sem handteknir voru. Erlent 25.9.2026 07:25
Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Samkomulag Bandaríkjanna og Danmerkur um Grænland gengur út á að halda sameiginlegum andstæðingum þeirra fjarri eyjunni. Leiðtogar þjóðanna skrifuðu undir samkomulagið í New York í dag. Erlent 22. september 2026 15:43
Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Donald Trump Bandaríkjaforseti fór um víðan völl eins og hans er von og vísa í árlegri ræðu hans frammi fyrir Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. Hann segist standa frammi fyrir mikilli ákvörðun hvað varðar Íran, að gera samning við þarlend stjórnvöld eða eyða íslamska lýðveldinu. Þá gekk sendinefnd Kúbu út úr salnum og forsetinn sagði Bandaríkjamenn bera höfuð og herðar yfir Kína þegar kemur að gervigreind, sem hann nefndi nýju nafni. Erlent 22. september 2026 15:36
Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mun ávarpa allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Þar er hann meðal annars talinn ætla að státa sig af afrekum sínum og leggja línurnar fyrir næsta árið. Erlent 22. september 2026 14:13
Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Þrátt fyrir að losun á gróðurhúsalofttegundum hafi dregist saman í fyrra er útlit fyrir að árangurinn á þessum áratug verði aðeins rétt rúmur helmingur þess sem Ísland er skuldbundið til þess að ná. Markið heldur áfram að fjarlægjast í nýrri spá Umhverfis- og orkustofnunar um hvernig losun mun þróast næstu árin. Innlent 22. september 2026 11:01
Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, segir Ísland leggja áherslu á að tala fyrir friði og virðingu fyrir alþjóðalögum á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem stendur nú yfir í New York. Það séu hagsmunir Íslands og heimsins alls að efla Sameinuðu þjóðirnar og tryggja fullveldisrétt allra ríkja. Innlent 22. september 2026 10:08
Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Bandaríkjamenn, Grænlendingar og Danir munu í dag skrifa undir samning um varnarmál á Grænlandi en undirritunin fer fram í New York. Samkvæmt danska ríkisútvarpinu hyggjast Bandaríkjamenn reisa tvær nýjar herstöðvar á Grænlandi. Erlent 22. september 2026 07:17
Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna telur grundvöll til að telja að Bandaríkjamenn hafi framið stríðsglæpi í tveimur árásum þeirra á Íran á þessu ári. Það telur írönsk stjórnvöld einnig hafa framið glæp gegn mannkyninu þegar þau börðu niður mótmæli. Erlent 17. september 2026 13:24
Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna mun greiða atkvæði í dag um ályktun sem felur í sér að fólk hætti formlega að nota hið hefðbundna Mercator-kort af jörðinni og taki þess í stað upp kort sem sýnir stærð Afríku með nákvæmari hætti. Erlent 4. september 2026 07:55
Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Ekki er lengur mögulegt að koma í veg fyrir að hlýnun jarðar verði umfram eina og hálfa gráðu og líklegt er að farið verði fram yfir þau mörk á næstu árum. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja brýnt að mannkynið komi í veg fyrir enn meiri hlýnun og reyni síðar að vinda ofan af þeirri sem þegar hefur átt sér stað. Erlent 2. september 2026 09:02
Fagnað á götum Kabúl Ríkisstjórn Talíbana í Afganistan fagnaði því í dag að fimm ár eru liðin frá því að höfuðborg landsins, Kabúl, var hertekin. Brynvarðir bílar skreyttir fánum keyrðu um stræti og fulltrúar ríkisstjórnarinnar tjáðu sig fjálglega um árangur hennar. Erlent 15. ágúst 2026 20:39
Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Rússar halda enn í það minnsta sextán þúsund úkraínskum borgurum föngnum og er mörgum þeirra haldið við aðstæður sem fara gegn alþjóðasamþykktum. Pyntingar og kynferðislegt ofbeldi er sagt kerfisbundið, bæði gegn úkraínskum borgurum og stríðsföngum. Erlent 11. ágúst 2026 22:01
„Veiddu“ grænmetissala með dróna Rússneskir hermenn eltu á dögunum óbreyttan borgara með sjálfsprengidróna og reyndu að sprengja hann í loft upp. Maðurinn var að setja upp sölubás fyrir grænmeti í Kherson í suðurhluta Úkraínu þegar drónaárásin var gerð. Maðurinn lifði af en forseti Úkraínu segir þetta enn eina sönnun þess að Rússar hafi misst vitið og að rússneskir hermenn njóti þess að „veiða“ óbreytta borgara, drepa þá og misþyrma þeim. Erlent 4. ágúst 2026 16:04
Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Donald Trump vill að Gianni Infantino, forseti FIFA, verði næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Forsetarnir tveir eru góðir vinir og er Trump sagður sannfærður um að Infantino njóti mikillar virðingar um heiminn allan. Trump mun þar að auki telja að Infantino hafi sérstakan hæfileika í því að skapa samstöðu. Erlent 22. júlí 2026 13:07
Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Hvorki utanríkisráðherrar Íslands né Frakklands svöruðu því beint hvort þau myndu styðja hugsanlega handtöku Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þegar hann kæmi til New York í september. Utanríkisráðherra Íslands segir að allar slíkar aðgerðir þurfi að vera samkvæmt alþjóðalögum. Erlent 21. júlí 2026 15:42
Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Yfir 300 börn hafa farist eða særst í stríðinu í Súdan á síðustu sex mánuðum, flest vegna drónaárása. Þetta segir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) en súdanski herinn og vígasveitirnar Rapid Support Forces (RSF) hafa barist í landinu frá því í apríl 2023. Átökin eru talin hafa kostað minnst 59 þúsund manns lífið. Erlent 6. júlí 2026 23:59
Ísland kallaði eftir brýnni umræðu um stöðu mála í Súdan Ísland var meðal þeirra ríkja sem kölluðu eftir brýnni umræðu (e. urgent dabate) um stöðu mála í Súdan í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Fréttir 3. júlí 2026 15:57
„Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Stríðið í Súdan hefur leitt til verstu mannúðar- og flóttamannakrísu í heiminum fyrir konur og stúlkur, samkvæmt nýlegri skýrslum UN Women. Átökin á milli stjórnarhers Súdans og RSF-uppreisnarhersins hafa nú staðið yfir í þrjú ár og ná til fjölda héraða, þar með talið Darfúr og Kordófan. Svæðisstjóri UN Women í Súdan, Salvator Nkurunziza, segir nóg komið og að stríðinu verði að ljúka. Erlent 21. júní 2026 20:00
Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Rúmlega tvö hundruð þúsund manns hafa látist af völdum hita í Evrópu á undanförnum fjórum árum samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnunin. Hún telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir flest andlátanna. Erlent 11. júní 2026 11:34
Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð Mestu gljúfurkerfi íslenska landgrunnsins og kóralrif eru innan tæplega 33 þúsund ferkílómetra hafsvæðis sem Hafrannsóknastofnun leggur til að verði verndað. Verndunin er sögð geta haft einhver áhrif á botnvörpuveiðar. Innlent 11. júní 2026 10:09
Ísrael og Rússland á svörtum lista vegna kynferðisofbeldis í átökum Sameinuðu þjóðirnar hafa bætt Ísrael og Rússlandi á svartan lista vegna kynferðisofbeldis í átökum og vísa til misnotkunar af hálfu öryggissveita, þar á meðal nauðgunar á karlkyns föngum. Erlent 30. maí 2026 08:45
Aðför sem krefjist þess að talað sé um kvenréttindi frekar en kynjajafnrétti Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women, fundaði í mars með hundruðum félagasamtaka á árlegri kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Hún segir að í fyrsta skipti í 70 ára sögu þessa fundar hafi umræður og ályktun snúist um að verja þau réttindi sem þegar hafa náðst í stað þess að ræða það hvert eigi að stefna. Samtökin efna til fundar síðar í dag um bakslag í jafnréttismálum. Innlent 20. maí 2026 14:33