Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur

Árni Gísli Magnússon skrifar
Þórsarar lögðu FH-inga í sex stiga leik í dag.
Þórsarar lögðu FH-inga í sex stiga leik í dag. Hulda/Vísir

Þór vann mikilvægan 1-0 sigur gegn FH í 22. umferð Bestu deildar karla á VÍS vellinum á Akureyri í dag. Þorri Ingólfsson skoraði eina mark leiksins eftir tæpan klukkutíma.

Umferðin var sú síðasta fyrir skiptingu og eru Þórsarar eru áfram í tíunda sæti með 21 stig en jafna FH-inga að stigum en FH með hagstæðari markatölu.

Gestirnir frá Hafnarfirði fengu fyrsta færi leiksins strax á annarri mínútu en Aron Birkir Stefánsson varði þá skalla Grétars Snæs Gunnarssonar eftir hornspyrnu.

Christian Greko Jakobsen fékk fínt færi fyrir heimamenn nokkrum mínútum síðar eftir fyrirgjöf úr aukaspyrnu en skot hans framhjá.

Þórsarar héldu boltanum vel innan liðsins og stjórnuðu ferðinni fyrstu 25 mínúturnar eða svo áður en FH-ingar tóku betur við sér og leikurinn jafnaðist meira út.

Á 42. mínútu vildu Þórsarar fá vítaspyrnu þegar Ísak Óli Ólafsson fór utan í Sigfús Fannar Gunnarsson sem var að fara framhjá honum inni í teignum og datt Sigfús meira segja úr öðrum skó sínum við átökin en Pétur dæmdi ekkert við litla hrifningu Þórsara og stuðningsmanna þeirra.

Staðan markalaus í hálfleik.

Þórsarar voru betri aðilinn þegar síðari hálfleikur fór af stað og var því vel við hæfi að þeir kæmust í forystu eftir tæpan klukkutíma leik. Kevin Vazquez vann boltann á miðjunni og setti hann á Sigfús Fannar sem framlengdi boltann á Einar Frey Halldórsson og hann sendi boltann í gegn á Þorra Ingólfsson sem komst inn í teig og lagði boltann laglega í fjærhornið.

Þórsarar virtust bara eflast við markið og sóttu látlaust næstu tíu mínútur eða svo og voru óheppnir að bæta ekki við marki.

FH-ingar reyndu hvað þeir gátu til að ná inn jöfnunarmarki en varnarleikur Þórs var sterkur og fá alvöru færi sem sköpuðust.

Þór fór því með gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur af hólmi.

Atvik leiksins

Eina mark leiksins sem Þorri Ingólfsson skoraði. Vel útfærð sókn og laglega klárað hjá Þorra sem skoraði sitt fyrsta mark fyrir Þór og jafnframt sitt fyrsta mark í Bestu deildinni.

Stjörnur og skúrkar

Þorri Ingólfsson er einungis 17 ára gamall en er virkilega efnilegur og vinnusamur leikmaður sem átti svo sannarlega skilið að skora sigurmarkið í dag.

Einar Freyr Halldórsson er árinu eldri og lagði upp markið og átti frábæran leik á miðsvæðinu.

Kevin Vazquez var algjört akkeri í liði Þórs og vann fjöldann allan af boltum fyrir framan vörnina og sýndi af hverju hann hefur spilað í efstu deild á Spáni.

Þá voru Yann Affi og Gyrðir Hrafn frábærir í hjarta varnarinnar með Aron Birki fyrir aftan sig.

Hjá FH bjargaði Jökull Andrésson oft á tíðum vel í markinu og kom í veg fyrir stærra tap.

Dómarinn

Það var nokkuð hraustlega tekist á í Þorpinu í dag og þrátt fyrir að Pétur hafi flautað urmul af aukaspyrnum reyndi hann að láta leikinn fljóta og hefði vel getað flautað mikið meira.

Þórsarar heimtuðu vítaspyrnu í fyrri hálfleik þegar Sigfús Fannar var að sleppa framhjá Ísaki Óla en ekkert dæmt.

Pétur kemst ágætlega frá þessum leik.

Stemning og umgjörð

Nokkuð vel mætt í Þorpið og myndaðist góð stemning sérstaklega eftir að Þór komst í forystu. Leikmenn fögnuðu svo vel og innilega með stuðningsmönnum eftir leik.

Jóhannes Karl: „Þurfum að taka þetta á kinnina og halda áfram“

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FHVísir/Hulda Margrét

„Við vorum bara ekki góðir í dag. Það var bara nokkuð augljóst. Ég held við höfum verið bara undir í baráttunni og öðru og við ætluðum að koma og spila boltanum betur út frá marki og halda betur í hann. Það gekk fínt í fyrri hálfleik en þeir alveg eiginlega gerðu okkur mjög erfitt fyrir að spila út og mér fannst við missa svolítið hugrekkið og trúna í því. Þannig bara svona í heildina litið ekki góð frammistaða og við þurfum bara að taka það allir sem einn á kinnina og halda áfram“, sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, eftir 1-0 tap gegn Þór fyrir norðan í 22. umferð Bestu deildar karla.

Þórsarar mættu fastir fyrir og gerðu FH-ingum erfitt fyrir með góðri pressu og fannst Jóhannesi ýmislegt vanta upp á til að ná betra uppspili.

„Kannski bara meiri áræðni og aðeins meiri kraft kannski og vera óhræddir við að tapa bolanum eða reyna að spila út og tapa honum þá bara aðeins ofar á vellinum heldur en að vera pínu ragir kannski í seinni hálfleik. Við gerðum það betur allavega í fyrri hálfleik en við erum líka bara því miður aðeins að díla við smá veikindi í hópnum og vorum bara ekki við sjálfir í dag og við þurfum bara að drífa okkur að núllstilla okkur eftir þetta og fara að gíra okkur í næsta leik sem fyrst.“

Úrslitkeppnin er framundan þar sem FH spilar í neðri hlutanum þar sem liðið er í níunda sæti eftir 22. umferðir.

„Bara sama, við höldum áfram að gera okkar. Við höfum verið að ná að verjast bara vel sem lið og verið þéttir og varið markið okkar vel og það verður bara áframhald af því. Við höldum áfram að vinna í því hvar við getum bætt okkur. Við höldum líka áfram að bæta okkur sóknarlega, ég held að það sé alveg klárt og það skiptir okkur bara gríðarlega miklu máli að halda áfram að gera okkar inn í þessa úrslitakeppni; það sem koma okkur á þetta skrið, það sem að varð til þess að við komumst í ágætis stigasöfnun og góðum frammistöðum. Það eru þessar frammistöður sem munu tryggja okkur það við verðum öflugir í umspilinu“, sagði Jóhannes að lokum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira