Enginn andvígur hvalveiðum Sunna Sæmundsdóttir skrifar 4. september 2026 17:51 Fulltrúar allra þingflokka mættu í Pallborðið á Vísi og ræddu þingveturinn fram undan. Þar komu hvalveiðar meðal annars til tals en atvinnuvegaráðherra hefur boðað frumvarp um veiðarnar. vísir/EInar Atvinnuvegaráðherra boðar frumvarp um hvalveiðar í haust og hefur sagt óbreytta stöðu ekki inni í myndinni. Þingmenn sem mættu í Pallborðið í gær voru beðnir um að taka afstöðu til veiðanna og sagðist enginn þeirra vera andvígur þeim.
Hvalveiðar hafa verið í brennidepli síðustu ár. Mótmælendur reyndu að stöðva veiðarnar í ár og í fyrra með því að fara upp í tunnur hvalveiðiskipa og náttúru- og dýrnaverndarsamtök hafa skorað á stjórnvöld að stöðva þær. Í ár var gefinn út kvóti til veiða á 116 langreyðum og í dag var greint frá því að hann verði líklega ekki tæmdur. Starfshópur skilaði í fyrra af sér skýrslu um lagaumgjörð hvalveiða og hefur Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, sagt að óbreytt staða veiðanna sé ekki inni í myndinni. Hún hefur boðað frumvarp um breytingar á fyrirkomulagi þeirra í haust og sagði í viðtali við fréttastofu að hennar skoðun væri sú að tímabært væri að hætta veiðunum. Þingmenn allra flokka sem mættu í Pallborðið á Vísi í gær voru beðnir um að taka afstöðu til veiðanna í ljósi þess að málið kemur líklega til kasta þingsins í vetur. Enginn þeirra sagðist andvígur hvalveiðum þrátt fyrir að stuðningurinn væri mismikill. María Rut Kristinsdóttir, varaformaður þingflokks Viðreisnar, sagðist hvorki vera heit í afstöðu sinni með eða á móti. „Ég er auðvitað þingmaður í Norðvesturkjördæmi og þar eru hagsmunir sem skipta máli en við heyrum það samt alveg í samfélaginu að það er kallað eftir skýrri stefnumótun til framtíðar. Það má færa rök fyrir því að hvalveiðar séu barn síns tíma og ég held að við þurfum aðeins að sjá hvað kemur í haust,“ sagði María Rut. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingflokksformaður Flokks fólksins, sagði hennar skoðun í málinu svipaða. „Ég hef stundum hugsað það verði að hætta þessu og stundum hugsað hvers vegna ætti ekki að halda áfram. Þannig að þetta er heldur ekki stóra málið hjá mér.“ Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingmaður Samfylkingar, segir að bæta megi umgjörð hvalveiða.vísir/Einar Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingar tók í svipaðan streng. Hann hafi ekki séð þingmálið og því væri erfitt að gefa upp afstöðu sína. „Ég held að það sé margt í umgjörð hvalveiða sem megi endurskoða. Hvernig hvalveiðar eru framkvæmdar og unnar, margt varðandi heilbrigðishætti og annað sem er eðlilegt að tekið verði til skoðunar og kannski nútímavætt ef við ætlum að halda þessum hvalveiðum áfram,“ sagði Guðmundur. Þingmenn stjórnarandstöðunnar voru þó eindregnari í sínum stuðningi. „Ég hef hingað til stutt sjálfbærar hvalveiðar og mun gera það áfram. Ég hef ekki séð þetta mál en tek eflaust þátt í umræðunni þegar hún kemur fram,“ sagði Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknar. Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, lýsti yfir eindregnum stuðningi við hvalveiðar.vísir/Einar Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, sagðist hafa sömu skoðum á hvalveiðum og annarri nýtingu á auðlindum. „Við eigum auðvitað að nýta auðlindir með skynsamlegum hætti og hvalveiðar eru auðvitað hluti af því.“ Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist styðja veiðarnar eindregið. „Undir merkjum Sjálfstæðisflokksins styðjum við auðvitað sjálfbærar veiðar og atvinnufrelsi í þessu eins og öðru.“
Pallborðið Hvalveiðar Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Flokkur fólksins Viðreisn Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Sjá meira