Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sindri Sverrisson skrifar 5. september 2026 08:02 Aryna Sabalenka vann öruggan sigur í þriðju umferð þrátt fyrir marijúanalyktina. Getty/Robert Prange Það gengur ýmislegt á innan vallar sem utan á Opna bandaríska mótinu í tennis. Í gær bað Aryna Sabalenka, fremsta tenniskona heims, um hjálp út af mikilli marijúanalykt á vellinum.
Neysla kannabisefna er lögleg í New York en hún er engu að síður bönnuð á mótssvæðinu, í Billie Jean King tennismiðstöðinni. Það virðist þó ekki hafa stöðvað einhverja af áhorfendunum á Opna bandaríska mótinu eins og Sabalenka lét dómara vita af í leik sínum við Kamillu Rakhimova í gær. Sabalenka halted her US Open match due to a spectator who was smoking marijuana in the stands. "It's very strong."Can you believe this shit is happening in New York? pic.twitter.com/rRE1SB05I7— Greggs (@greggs_tn) September 4, 2026 Sabalenka var 2-0 yfir í fyrsta setti þegar hún fór til dómarans og heyrðist segja: „Það er einhver að reykja gras, svo gætirðu vinsamlegast… því þetta er svo sterk [lykt].“ Dómarinn kom skilaboðum um þetta áfram svo að öryggisverðir gætu brugðist við. Snúið að ná fram sínu besta í svona lykt Sabalenka endaði á að vinna öruggan sigur, 6-3 og 6-4, og virtist ekki láta lyktina trufla sig of mikið. „Ég hugsaði með mér: „Heyrðu, þið getið gert hvað sem er, reykt hvað sem er, slakað á eins mikið og þið getið, en ekki gera það í kringum tennisvöll.“ „Það er svolítið snúið að kljást við þessa lykt og ná fram sínu besta. Það var smá vindur; ég veit ekki hvort lyktin kom frá áhorfendum eða utan frá,“ sagði Sabalenka. Keppendur hafa einnig kvartað yfir því hvernig áhrifavaldar, sem boðnir hafa verið sérstaklega á mótið, hafa látið á áhorfendasvæðinu. Þeir hafa gerst sekir um hávaða og aðra truflun á meðan á leik stendur.
Tennis Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Formúla 1 Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Formúla 1 Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Fótbolti Fleiri fréttir Ruglaðist á mótherja og komst að því í miðju viðtali Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ætlar að taka sér pásu út tímabilið Enn ein vonbrigðin fyrir Hadjar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Tveir nýliðar í landsliðshópnum Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Daníel Guðjohnsen fékk tækifæri eftir mikla óvissu Elche - Real Sociedad | Orri í eldlínunni Lið Elíasar bjargaði stigi Frumkvöðlar hér heima heiðraðir Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Hafa ekki enn fengið útskýringu á því af hverju Balogun fékk að spila Arsenal er með langbesta liðið Gaf hundinum sínum loforð og sló heimsmet Hafþórs Fer frá Hlíðarenda til Molde Sjá meira