Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar 5. september 2026 13:30 Lindsay Clancy-málið hefur vakið gríðarlega athygli langt út fyrir Bandaríkin, ekki aðeins vegna þess sem gerðist á heimili fjölskyldunnar í Massachusetts, þar sem Clancy kyrkti börnin sín þrjú, Coru fimm ára, Dawson þriggja ára og Callan, átta mánaða. Fjöldi kvenna hefur fylkt sér um Lindsay Clancy. Þær mættu fyrir utan dómshúsið henni til stuðnings og á samfélagsmiðlum varð til samstöðuhreyfing með henni. Aftur og aftur heyrast sömu skýringarnar: Hún var móðir þriggja ungra barna, hafði eignast þriðja barnið átta mánuðum áður. Hún var þunglynd, svefnvana, á lyfjum, undir álagi. Allt þetta getur skipt máli þegar dómstóll metur geðrænt ástand sakbornings og sakhæfi. En það er ekki afsökun. „Hysteríska“ konan snýr aftur Það er söguleg kaldhæðni fólgin í umræðu stuðningskvenna Clancy. Í aldaraðir var konum haldið frá völdum m.a. vegna þess að þær væru of tilfinningasamar, of háðar líffræði og hormónum – of óstöðugar til að bera sömu ábyrgð og karlar. Konur voru „hysterískar.” En nú heyrast sömu röksemdirnar þegar ábyrgðin verður óþægileg. Lindsay Clancy átti svo bágt… Hvað varð um konurnar sem ekki átti að skilgreina út frá hormónum og líffræði? Er svefnleysi afsökun fyrir þreföldu morði? Það er enginn ágreiningur um að geðsjúkdómar eru raunverulegir. En það sem vekur furðu við umræðuna um Clancy er hversu auðveldlega athyglin hefur færst frá fórnarlömbunum yfir á gerandann. Þrjú börn voru myrt, faðir missti öll börnin sín og konur hafa staðið fyrir utan dómshúsið til stuðnings móðurinni sem varð þeim að bana. Ein þeirra nefndi meira að segja við fréttamenn að Clancy hefði verið „mjög svefnvana“. Svefnvana? Er svefnleysi virkilega orðið vörn fyrir því að kyrkja þrjú börn? Ábyrgð fylgir réttindum Ísland er fremsta land í heimi hvað varðar réttindi kvenna. Rétt til menntunar, til atvinnu, til sömu launa, stjórnmálaþátttöku, sjálfræðis, til að ráða eigin líkama. Öll þessi réttindi byggjast á einni grundvallarforsendu: Konur eru sjálfstæðir einstaklingar sem bera ábyrgð á eigin ákvörðunum. Það er ekki hægt að taka fyrri hluta þeirrar setningar og henda seinni hlutanum. Sjálfræði og ábyrgð eru ekki tveir óskyldir hlutir. Annað fylgir hinu. Við konur getum ekki krafist þess að samfélagið taki ákvarðanir okkar jafn alvarlega og ákvarðanir karla þegar þær eru okkur til framdráttar, en krefjast þess síðan að hormónar, tilfinningar, þunglyndi eða móðurhlutverkið dragi sjálfkrafa úr ábyrgð okkar þegar ákvarðanir okkar hafa skelfilegar afleiðingar. Hvað sjá karlmenn? Bandaríska fjölmiðlakonan Sage Steele hefur vakið athygli fyrir að benda á hvað gerist ef karlar fara að endurskoða samskipti kynjanna: „Konur gera sér ekki grein fyrir því hversu afdrifarík þessi stund gæti reynst. Konur skipa sér í fylkingu með öðrum konum, en karlmenn geta gert slíkt hið sama. Kannski,” sagði Steele „munum við líta til baka eftir tuttugu ár og segja: ah, þarna var augnablikið þegar við misstum kosningaréttinn. Því hinn óþægilegi sannleikur fyrir konur er sá að ,ættbálkur karla’ þarf ekki á konum að halda til að tryggja réttindi karlmanna. Konur þurfa hins vegar á körlum að halda til að tryggja kvenréttindi. Konur fengu kosningarétt vegna þess að karlmenn gáfu konum þann rétt.” Steele var ekki að halda því fram að konur ættu að missa kosningaréttinn, heldur að vara við því sem gerist þegar samstaða verður svo skilyrðislaus að hún yfirgnæfir dómgreind. Sögulega staðreyndin, sem nútímafemínismi vill sjaldan ræða, er sú að konur—sem börðust af krafti fyrir kosningaréttindum sínum—gátu ekki lögfest þau réttindi án karla. Í Bandaríkjunum var nítjánda stjórnarskrárbreytingin samþykkt af þingum sem nær eingöngu voru skipuð körlum. Konur sannfærðu karlmenn um að pólitískt jafnrétti væri réttlátt. Karlmenn geta sagt „nú er nóg komið” Í áratugi hefur karlmönnum, sem verða að sætta sig við að ófædd börn þeirra deyi í fóstureyðingum, verið sagt að ákvörðunin tilheyri konunni einni vegna þess að um sé að ræða „hennar líkama,” þótt barnið eigi líka föður. Nú horfa karlmenn á móður, sem myrti þrjú börn sín, fá óhemju samúð meðal kvenna á meðan eiginmaður hennar er sakaður um að eiga að einhverju—eða jafnvel öllu—leyti sök á morðunum sem hún hefur viðurkennt að hafa framið. Eins og Steele orðaði það: „Það er ekki nóg með að konur geti bundið enda á líf ófæddra barna feðra allt fram á síðasta stig meðgöngu (þar sem engin lögbundin meðgöngumörk gilda), heldur geta þær nú myrt börn feðra eftir fæðingu og konan fær samúðina, en eiginmanninum er kennt um! Karlmenn gætu farið að hugsa með sér ,nú er nóg komið, dömur… Þið njótið ykkar réttinda vegna þess að við karlmenn gáfum ykkur þau réttindi! Við getum líka tekið þau’.” Nokkuð sem við ættum að velta alvarlega fyrir okkur. Höfundur er fjölmiðlafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ofbeldi gegn börnum Erlend sakamál Geðheilbrigði Kvenheilsa Börn og uppeldi Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar