Bilun hjá Teya olli löngum röðum Tómas Arnar Þorláksson og Áróra L Davíðsdóttir skrifa 5. september 2026 15:28 Frá því í Ikea upp úr klukkan þrjú í dag. vísir Langar biðraðir mynduðust í Ikea og víða annars staðar í dag vegna bilunar hjá fjártæknifyrirtækinu Teya. Bilunin kom upp um tuttugu mínútur í þrjú. Eins og stendur er unnið að því að leysa úr kerfisbilun hjá Teya sem veldur þjónustuörðugleikum í posum og greiðslumiðlun víða. Allt tiltækt lið Teya hefur verið kallað út til að vinna að vandamálinu. Þetta kemur fram í upplýsingum frá fyrirtækinu en þar er beðist innilegrar velvirðingar á vandamálum sem bilunin kann að valda. Kristófer Daði Garðarson, yfirmaður hjá þjónustuveri Teya segir í samtali við fréttastofu að lausn sé í sjónmáli. Vonir voru bundnar við að kerfið yrði aftur komið í gang upp úr klukkan 16.00 en það tókst ekki. „Það voru vendingar í gangi og tilraunir sem virtust líta vel út en það virðist síðan ekki hafa gengið eins og við vildum. Auðvitað segir maður alltaf bara að þetta komist í lag sem fyrst. Allir eru að gera sitt besta í að reyna að laga þetta,“ segir Kristófer Daði. Hann tekur fram að fjöldi verslana og annarra fyrirtækja sem bilunin hefur áhrif á hlaupi á hundruðum. Búið sé að greina vandamálið sem snúi að tengingu milli kassakerfis og posa. Teya hafi ráðlagt þeim verslunum og fyrirtækjum sem hafi lent í vandræðum að taka posana af kassakerfistengingunni. Veistu meira um málið? Ertu á svæðinu eða áttu myndefni? Sendu okkur fréttaskot. Einnig er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum hefur hálfgerð örtröð myndast í verslun Ikea í Kauptúni. Röðin nær langt inn á lagerinn hjá Ikea.vísir/aðsend Stefán Rúnar Dagsson, framkvæmdastjóri Ikea, segir í samtali við fréttastofu að bilunin hafi staðið yfir í um klukkutíma. Hann tekur fram að GSM-posar hafi verið teknir í gagnið og því gangi afgreiðslan áfram þó hún gangi hægar fyrir sig. Röðin.vísir/aðsend „Þetta eru mjög langar raðir hjá okkur en við erum GSM-posa sem við getum gripið til. Þetta er á versta tíma og er bara alltaf á versta tíma. Alveg sama hvenær það gerist, þetta er alveg ömurlegt. Ömurlegt að geta ekki treyst kerfinu.“ Uppfært kl 20:39: Posar tengdir kassakerfum virka nú á ný hjá Teya. Fréttin hefur verið uppfærð Greiðslumiðlun Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira
Eins og stendur er unnið að því að leysa úr kerfisbilun hjá Teya sem veldur þjónustuörðugleikum í posum og greiðslumiðlun víða. Allt tiltækt lið Teya hefur verið kallað út til að vinna að vandamálinu. Þetta kemur fram í upplýsingum frá fyrirtækinu en þar er beðist innilegrar velvirðingar á vandamálum sem bilunin kann að valda. Kristófer Daði Garðarson, yfirmaður hjá þjónustuveri Teya segir í samtali við fréttastofu að lausn sé í sjónmáli. Vonir voru bundnar við að kerfið yrði aftur komið í gang upp úr klukkan 16.00 en það tókst ekki. „Það voru vendingar í gangi og tilraunir sem virtust líta vel út en það virðist síðan ekki hafa gengið eins og við vildum. Auðvitað segir maður alltaf bara að þetta komist í lag sem fyrst. Allir eru að gera sitt besta í að reyna að laga þetta,“ segir Kristófer Daði. Hann tekur fram að fjöldi verslana og annarra fyrirtækja sem bilunin hefur áhrif á hlaupi á hundruðum. Búið sé að greina vandamálið sem snúi að tengingu milli kassakerfis og posa. Teya hafi ráðlagt þeim verslunum og fyrirtækjum sem hafi lent í vandræðum að taka posana af kassakerfistengingunni. Veistu meira um málið? Ertu á svæðinu eða áttu myndefni? Sendu okkur fréttaskot. Einnig er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum hefur hálfgerð örtröð myndast í verslun Ikea í Kauptúni. Röðin nær langt inn á lagerinn hjá Ikea.vísir/aðsend Stefán Rúnar Dagsson, framkvæmdastjóri Ikea, segir í samtali við fréttastofu að bilunin hafi staðið yfir í um klukkutíma. Hann tekur fram að GSM-posar hafi verið teknir í gagnið og því gangi afgreiðslan áfram þó hún gangi hægar fyrir sig. Röðin.vísir/aðsend „Þetta eru mjög langar raðir hjá okkur en við erum GSM-posa sem við getum gripið til. Þetta er á versta tíma og er bara alltaf á versta tíma. Alveg sama hvenær það gerist, þetta er alveg ömurlegt. Ömurlegt að geta ekki treyst kerfinu.“ Uppfært kl 20:39: Posar tengdir kassakerfum virka nú á ný hjá Teya. Fréttin hefur verið uppfærð
Veistu meira um málið? Ertu á svæðinu eða áttu myndefni? Sendu okkur fréttaskot. Einnig er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is
Greiðslumiðlun Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira