Atvinnulíf

Mögu­leg enda­lok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eigin­konunni

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðarins segir ótrúlega gaman að fylgjast með litlu trillunum og stóru skemmtiferðaskipunum í Hafnarfjarðarhöfn. Fátt hræðist hann meir en að tapa fyrir eiginkonunni í golfi.
Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðarins segir ótrúlega gaman að fylgjast með litlu trillunum og stóru skemmtiferðaskipunum í Hafnarfjarðarhöfn. Fátt hræðist hann meir en að tapa fyrir eiginkonunni í golfi. Vísir/Anton Brink

Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðar, verslunar- og menningarmiðstöðvar í Hafnarfirði, byrjar daginn á kaffibolla, fylgist með lífinu á höfninni og sinnir kisunni Múslí. 

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég er venjulega að vakna um klukkan 6 á virkum dögum, en um helgar reyni ég að hvíla mig lengur og njóta augnabliksins – nota aldrei vekjaraklukku nema þegar við eigum flug mjög snemma.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Kaffi fyrst, svo heimsspæjarinn! Ég fæ mér kaffibolla, horfi yfir sjóinn og fylgist með lífinu á höfninni og í miðbænum. 

Það er svo ótrúlega gaman að fylgjast með litlu trillunum og stóru skemmtiferðaskipunum í Hafnarfjarðarhöfn. Svo þarf ég að sinna litla gleðigjafanum á heimilinu, kisunni okkar Múslí. 

Eftir það er kveikt á vinnutölvunni og fjörið hefst.“



Er eitthvað sem hræðir þig þvílíkt á fyndinn hátt?

„Að tapa fyrir konunni í golfi… það myndi þýða endalok golfferilsins hjá mér. Ég er mikill keppnismaður!“

Guðmundur Bjarni heldur utan um skipulagið sitt með því að skrifa allt niður á lista, helst áður en hann mætir til vinnu. Á listann fara verkefni og forgangsröð þeirra. Enda í mörgu að sýsla segir hann, sjálfur sýslumaðurinn í Hafnarfirði að eiginn sögn.  Vísir/Anton Brink

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Það er nóg um að vera þessa dagana! Við erum á fullu að markaðssetja nýjan og breyttan Fjörð verslunar- og menningarmiðstöð og erum nýbúin að opna glæsilegt bókasafn á annarri hæðinni. 

Við erum líka á fullri ferð að selja glæsilegar íbúðir sem staðsettar eru ofan á Firði – áhugasamir geta kynnt sér þær á 220midbaer.is – ásamt því að reka Strand Hótel Apartments sem er hér á Strandgötunni.

Og svo eru jólin auðvitað farin að banka upp á! Við erum byrjuð að undirbúa jólavertíðina en Jólaþorpið er ein af stærstu hátíðum ársins hér í Hafnarfirði. Algjör skyldumæting er að láta sjá sig í Jólaþorpinu – já, jólin koma snemma hjá okkur.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

Já, þar sem maður er sýslumaðurinn í Hafnarfirði er margt að sýsla! Þar sem við erum bara tvö í öllum þessum verkefnum er mikilvægt að forgangsraða verkunum og koma þeim niður á blað sem þarf að klárast þann daginn. 

Listann reyni ég oftast að gera áður en ég mæti til vinnu. 

Við skiptum verkefnunum á milli okkar, ég og eldri dóttir mín Guðrún María, en dagarnir eru ófyrirsjáanlegir og við náum sjaldan að klára listann – þá eru kvöldin oft notuð.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Hef lengi farið seint að sofa og vaknað snemma, en núna leitast ég við að fara upp í rúm fyrir miðnætti – góður svefn er gulli betri.“


Tengdar fréttir

„Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!”

Elísabet Ósk Guðjónsdóttir, mannauðsstjóri hjá ECIT, segir brúðkaupsundirbúning aðeins raska svefnrútínunni þessar vikurnar en með fjórar ungar stúlkur á heimili og hund ná skötuhjúin sínum dekurstundum með einkaþjálfara í ræktinni.

Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma

Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, reynir að hlaupa fyrir vinnu tvisvar til þrisvar í viku. Stærra afrek á morgnana felist þó í að undirbúa daginn með fjölskyldunni og koma öllum út úr húsi á réttum tíma. Enda aðal-vekjaraklukkan á heimilinu aðeins tveggja ára.

Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg!

Davíð Lúther Sigurðarson rekur nokkra veitingastaði og skemmtistaði í Reykjavík og á Selfossi þar sem hann sér einnig um miðbæinn. Davíð finnst ekkert mál að skipuleggja hátíð fyrir þúsundir manna. Ein lítil kónguló getur þó hrætt úr honum líftóruna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×