Systir Haraldar er látin Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 11. september 2026 13:03 Ástríður var eldri systir Haraldar. Antony Jones/Getty Images) Ástríður prinsessa af Noregi er látin, 94 ára að aldri. Tvær vikur eru síðan bróðir hennar Haraldur konungur lést.
Þetta hafa norskir miðlar eftir tilkynningu frá norsku konungsfjölskyldunni. Þar segir að prinsessan hafi sofnað svefninum langa í dag, föstudaginn 11. september. Ástríður var eldri en Haraldur en varð þrátt fyrir það ekki erfingi krúnunnar vegna laga um erfðarétt. Lögunum var breytt árið 1990 þannig að elsta barn hefði forgang í erfðaröðinni óháð kyni. Segir fjölskyldan að Ástríður hafi ávallt verið mikilvægur stuðningur fyrir Harald en prinsessan sótti jarðarför hans fyrir tveimur dögum síðan. Konungsfjölskyldan birti í síðustu viku myndir af Ástríði prinsessu fyrir framan kistu Haraldar konungs í Hallarkapellunni. Konungsfjölskyldan segir að prinsessan hafi sinnt verkefni sínum fyrir fjölskylduna af eldmóði fram á síðasta dag. Hún hafi verið með hlýja nærveru og smitandi kímnigáfu. Fráfall hennar sé mikill missir. Hún var fulltrúi konungsfjölskyldunnar heima og erlendis, oft ásamt föður sínum. Þann 12. janúar 1961 giftist hún kaupsýslumanninum og siglingamanninum Johan Martin Ferner. Það gerði hún með sérstöku leyfi konungs en Ferner hafði verið giftur áður. Ferner lést árið 2015 en þau eignuðust fimm börn saman. Norski miðillinn VG segir að prinsessan hafi tjáð blaðamanni miðilsins að frá því að hún varð ekkja hafi hún fyllt dagana af viðburðum til að fylla tómarúmið sem eiginmaðurinn skildi eftir sig.
Noregur Kóngafólk Haraldur V Noregskonungur Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Fleiri fréttir Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Sjá meira