Sport

„Lamar Jackson hefur aldrei gert neitt“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lamar Jackson þarf að skila árangri í vetur.
Lamar Jackson þarf að skila árangri í vetur. vísir/getty

Baltimore Ravens hefur ekki staðið undir væntingum undanfarin ár og því fór félagið í róttækar aðgerðir eftir síðasta tímabil.

John Harbaugh hafði þjálfað Ravens frá árinu 2008. Oft með fínum árangri og einum Super Bowl titli. Illa hefur gengið að endurtaka þann leik þó svo liðið sé með einn besta leikstjórnanda deildarinnar undanfarin ár. Sá heitir Lamar Jackson.

Hermt er að Lamar hafi stillt félaginu upp við vegg. Annað hvort færi hann eða Harbaugh. Hvort sem það sé satt eður ei þá var Harbaugh látinn fara og Jesse Minter var ráðinn í hans stað. Sá þjálfaði fyrir Ravens á árunum 2017-20 en var varnarþjálfari LA Chargers á síðasta ári.

„Ég held að Baltimore Ravens muni valda vonbrigðum í vetur,“ sagði Eiríkur Stefán Ásgeirsson í upphitunarþætti Lokasóknarinnar fyrir tímabilið.

„Ég skil ekki þessa umræða hjá fólki í Bandaríkjunum að Ravens sé eitt af þrem bestu liðum deildarinnar. Hvenær ætlum við að horfast í augu við það að Lamar Jackson hefur aldrei gert nokkurn skapaðan hlut.“

Henry Birgir Gunnarsson var ósammála Eiríki en umræðuna um Ravens má sjá hér að neðan.

Klippa: Lokasóknin um Ravens



Fleiri fréttir

Sjá meira


×