Haukur leiddi endurkomu Löwen Valur Páll Eiríksson skrifar 11. september 2026 19:55 Haukur kom beint á tíu mörkum í frábærri endurkomu Löwen. Uwe Anspach/picture alliance via Getty Images Haukur Þrastarson var öflugur í frábærum endurkomusigri Rhein-Neckar Löwen á nýliðum Balingen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.
Löwen tók á móti nýliðum Balingen í kvöld eftir að hafa átt strembna byrjun á tímabilinu. Byrjun nýliðanna hefur aftur á móti verið vonum framar og þeir voru tveimur stigum fyrir ofan Löwen fyrir leik kvöldsins. Balingen byrjaði töluvert betur í kvöld og komst fjórum mörkum yfir, 7-3, snemma leiks. Þeir bættu við forystuna og leiddu með fimm marka mun, 14-9, í hálfleik. Mest náðu þeir þá sex marka forskoti, 17-11, snemma í síðari hálfleik en Haukur Þrastarson átti þá stóran hlut í að Löwen vann sig til baka þar sem hann lagði upp eitt og skoraði tvö á leið Löwen til að minnka muninn í 19-17. Áfram börðust Ljónin og tókst með fjórum mörkum í röð að breyta stöðunni úr 22-19 fyrir Balingen í 23-22 sér í vil þegar átta mínútur voru eftir. Löwen komst 26-23 yfir þegar minna en fimm mínútur voru eftir en þá svaraði Balingen með þremur mörkum til að jafna 26-26 þegar tvær mínútur lifðu leiks. Við tóku spennuþrungnar lokamínútur en þar tókst Löwen að knýja fram nauman 29-27 sigur. Haukur kom beint að tíu mörkum í leiknum þar sem hann skoraði fimm og lagði fimm upp. Eftir sigurinn jafnar Löwen andstæðinginn Balingen að stigum. Bæði eru um miðja deild með fjögur stig eftir fyrstu fjóra leikina. Sigur í fyrsta leik hjá Viktori Gísla Á Spáni fór tímabilið af stað í kvöld og Barcelona vann öruggan 48-32 útisigur á Logrono. Ludovic Fabregas stóð upp úr hjá Börsungum með átta mörk af línunni. Viktor Gísli Hallgrímsson varði fimm skot í leiknum af þeim 19 sem hann fékk á sig og var því mepð markvörslu upp á 26 prósent.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira