Handbolti

Ís­lendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um læri­sveina Rúnars

Aron Guðmundsson skrifar
Ómar Ingi Magnússon í leik með Magdeburg
Ómar Ingi Magnússon í leik með Magdeburg Getty/Igor Kralj

Íslendingalið Magdeburg var ekki í vandræðum með lærisveina Rúnars Sigtryggssonar í liði Wetzlar þegar liðin mættust í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Sigur Magdeburgar var aldrei í hættu í leik dagsins og stjórnaði meistaraliðið ferðinni frá upphafi til enda og sigldi að lokum heim öruggum átta marka sigri, 38-30.

Ómar Ingi Magnússon skoraði fjögur mörk í leiknum og lagði upp tvö á meðan að Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði þrjú og lagði upp fjögur. Þá gaf Elvar Örn Jónsson tvær stoðsendingar. 

Með sigrinum heldur fullkomin byrjun Magdeburg í þýsku deildinni áfram. Liðið með fullt hús stiga eftir fyrstu fjóra leiki sína. Wetzlar hefur sótt eitt stig af átta mögulegum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×