Sport

Þakkaði mömmu sem sagði: „Þessi sjúk­dómur mun ekki skil­greina okkur“

Sindri Sverrisson skrifar
Alexander Zverev hefur nú unnið sín fyrstu tvö risamót, á skömmum tíma, og er afar þakklátur mömmu sinni.
Alexander Zverev hefur nú unnið sín fyrstu tvö risamót, á skömmum tíma, og er afar þakklátur mömmu sinni. Samsett/Getty

Þjóðverjanum Alexander Zverev virtist fyrirmunað að vinna risamót þar til í ár en nú hefur þessi 29 ára Þjóðverji unnið tvö risamót í tennis á skömmum tíma. Hann þakkaði móður sinni eftir sigurinn á Opna bandaríska mótinu í gær og segir hana mikilvægustu manneskju í lífi sínu.

Zverev vann heimamanninn Ben Shelton í úrslitaleik í New York í gærkvöld, í hörkuleik, og var svo einbeittur að hann áttaði sig ekki á því þegar sigurinn var í höfn.

Zverev hefur nú unnið tvo risatitla og það þrátt fyrir að hafa glímt við sykursýki 1 alla ævi. Hann telur að staðan gæti verið allt önnur ef mamma hans, Irina Zverev sem sjálf var tennisspilari, hefði ekki verið svo staðráðin í að láta sjúkdóminn ekki ráða för.

„Ég vil þakka einni manneskju í viðbót. Einhverri sem horfir eiginlega aldrei á leikina mína, en er mikilvægasta manneskjan á tennisferli mínum og í lífi mínu almennt,“ sagði Zverev í sigurræðu sinni í gær og beindi orðunum að mömmu sinni:

„Þegar fjögurra ára sonur þinn greinist með sykursýki og læknarnir segja þér að líf hans og íþróttaiðkun verði mjög, mjög takmörkuð, þarf mjög sterka móður til að ganga út af þeirri skrifstofu og segja:

„Sonur minn verður það sem hann vill verða. Ef hann vill verða tennisspilari, þá verður hann tennisspilari. Ef hann vill gera eitthvað annað, þá gerir hann eitthvað annað. En þessi sjúkdómur mun ekki skilgreina okkur.“

Móðir mín er mikilvægasta og sterkasta manneskjan sem ég þekki. Það þarf ótrúlega sterka konu til að gera það sem hún gerði,“ sagði Zverev.

Ekki alltaf mætt skilningi

Vegna glímu sinnar við sykursýki þarf Zverev að fá insúlínskot í leikjum, til að mynda tvisvar í gær þegar hann vann Shelton. Hann hefur hins vegar ekki alltaf mætt skilningi hvað þetta varðar og var bannað að taka insúlín í leik á Opna franska mótinu árið 2023, sem var meðal annars gagnrýnt af Alþjóða sykursýkissamtökunum.

Einhverjir hafa reynt að draga úr afreki Zverev í gær með því að benda á fjarveru Carlos Alcaraz og meiðsli Jannik Sinner en Zverev lætur það ekki á sig fá.

„Ég vil þakka liðinu mínu. Við vorum í 30 ár án þess að vinna risatitil og nú höfum við unnið tvo á þriggja mánaða tímabili.

Ég held að Guð hafi séð hversu mikið við lögðum á okkur, hversu mikið við þjáðumst, hversu mikinn sársauka við gengum í gegnum. Ég held að árið 2026 sé afrakstur allra áranna á undan,“ sagði Zverev.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×