Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Samúel Karl Ólason skrifar 14. september 2026 10:01 Emmanuel Macron og Alexander Stubb, forsetar Frakklands og Finnlands. EPA/YOAN VALAT Finnar ætla að hefjast samstarf um öryggis- og varnarmál við yfirvöld í Frakklandi. Samningur þessi mun fela í sér að Finnland mun heyra undir kjarnorkuvopnavernd Frakklands og Finnar munu eiga í auknu varnarsamstarfi við Frakka og aðrar þjóðir sem að samstarfinu koma.
Ekki stendur til að koma fyrir kjarnorkuvopnum í Finnlandi, á friðartímum, samkvæmt yfirlýsingu frá Alexander Stubb, forseta Finnlands. Auk Finna hafa allar hinar Skandinavíuþjóðirnar, Norðmenn, Svíar og Danir, orðið aðilar að verkefninu. Þjóðverjar, Bretar, Belgar, Hollendingar, Ítalir og Grikkir eru það einnig. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, tilkynnti fyrr á árinu að til stæði að fjölga kjarnorkuvopnum Frakka og leyfa öðrum Evrópuþjóðum að taka þátt í æfingum varðandi kjarnorkuvopn. Þetta felur ekki í sér aðkomu að kostnaðinum við rekstur kjarnorkuvopna eða hýsingu þeirra en á að auka sameiginlegar varnir heimsálfunnar og fælingarmátt. Samkomulagið felur ekki í sér að áðurnefnd ríki heyri undir það sem gjarnan er kallað „kjarnorkuregnhlíf“ Frakklands. Það er að segja, að Frakkar munu ekki sjálfkrafa svara kjarnorkuárás á eitt þessara ríkja eða öll með eigin kjarnorkuvopnum. The defence partnership between Finland and France is deepening.Our cooperation took a significant step forward this summer when France announced its contribution of troops to NATO’s Forward Land Forces in Finland. Today, we took a new step forward as Finland joined the French… pic.twitter.com/6P2E6NqPyX— Alexander Stubb (@alexstubb) September 14, 2026 Stubb segir að samstarf Finna og Frakka hafi aukist töluvert fyrr i sumar, þegar Frakkar sendu hermenn til Finnlands. Nú hafi það aukist enn frekar en samkomulagið snúi mest að því að Evrópa taki ábyrgð á eigin vörnum og auki fælingarmátt til að koma í veg fyrir átök. Evrópa spili stærri rullu Í yfirlýsingu frá varnarmálaráðuneyti Finnlands segir að viðræður um samstarfið hafi átt sér stað um nokkurt skeið milli Finna og Frakka. Enn eigi eftir að ræða hvernig samstarf ríkjanna muni verða. Fyrst verði það rætt af stjórnmálamönnum og í kjölfarið af yfirmönnum herafla ríkjanna. Þar segir einnig að samstarfið fari ekki gegn fyrri skuldbindingum Finna hvað varðar útbreiðslu kjarnorkuvopna eða bann við tilraunum kjarnorkuvopna. „Evrópa verður að spila stærri rullu í hefðbundnum vörnum og deila betur kostnaði við kjarnorkuvopnafælingu," er haft eftir Antti Häkkänen, varnarmálaráðherra, í yfirlýsingunni. Hann segir enn fremur að þessi málefni séu gífurlega mikilvæg öryggi Finnlands. Allt gerist þetta í skugga þess að ráðamenn í Evrópu telja ekki lengur hægt að stóla á Bandaríkin eins og áður þegar kemur að varnarmálum. Franska verkefninu er þó ekki ætlað að leysa Atlantshafsbandalagið af hólmi, heldur eiga sér stað innan bandalagsins.
Finnland Frakkland Hernaður NATO Kjarnorkuvopn Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Fleiri fréttir Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Sjá meira