NATO

NATO

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Bandero dregið úr höfn og flutt til Akra­ness

Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, var dregið úr höfn í gærkvöldi og til Akraness. Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumaður hjá Faxaflóahöfnum, sagði við mbl.is í gærkvöldi að búa ætti til pláss við höfnina. Um rekstrarlega ákvörðun hafi verið að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Al­gjör­lega varnar­lausir gegn skotflaugum Rússa

Rússar skutu 24 skotflaugum, fjórum annars konar eldflaugum og 115 sjálfsprengidrónum að Kænugarði og úthverfum borgarinnar í nótt. Úkraínumenn segjast hafa skotið 98 dróna niður en ekki einustu eldflaug en að minnsta kosti sautján létu lífið í árásinni og tugir eru særðir. Úkraínumenn virðast búnir með flugskeyti sín í einu loftvarnarkerfin sem þeir eiga sem geta verið notuð til að skjóta niður rússneskar skotflaugar.

Erlent
Fréttamynd

Rússnesk stýriflaug lík­lega lent í Pól­landi

Rússnesk Kh-101 stýriflaug á leið til Úkraínu lenti í Póllandi í nótt. Þetta segir Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu. Władysław Kosiniak-Kamysz, varnarmálaráðherra Póllands, segir að „líklegast“ hafi verið um að ræða Kh-101 stýriflaug sem skotið er úr lofti. Atvikið sé enn til rannsóknar.

Erlent
Fréttamynd

Kíkti í kaffi til kanslarans

„Ég átti þar leið hjá og nýtti tækifærið,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands í færslu, en hún hitti Friedrich Merz kanslara Þýskalands í vikunni.

Lífið
Fréttamynd

Vopna­fram­leið­endur reyna að koma til móts við Evrópu

Forsvarsmenn bandarískra hergagnaframleiðenda mættu áhyggjum þegar þeir mættu á flugsýningu í Farnborough í Bretlandi í vikunni. Þar lýstu evrópskir viðskiptavinir ítrekað yfir áhyggjum af því að reiða of mikið á Bandaríkjamenn þegar kemur að hergögnum og framleiðslu þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni að­lagast

Þrjú spænsk herskip eru við Reykjavík vegna eftirlits- og viðbragðsverkefnis NATO á Norður-Atlantshafi. Tvö kanadísk herskip eru á leið til landsins og fyrirhuguð er sameiginleg æfing í vikunni þar sem varnir gegn árásum dróna verða æfðar.

Innlent
Fréttamynd

Fylgjendafjöldi Krist­rúnar fimm­faldast

Kristrún Frostadóttir vakti greinilega athygli heimamanna á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi í vikunni. Fylgjendafjöldi hennar á Instagram hefur fimmfaldast og farið úr 20 þúsundum í rúm 107 þúsund á fjórum dögum. Nýju fylgjendurnir virðast flestir vera Tyrkir og hafa færslur Kristrúnar fyllst af tyrkneskum ummælum.

Lífið
Fréttamynd

Fengu öll á­letraða skamm­byssu að gjöf frá Erdogan

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og aðrir leiðtogar NATO-ríkjanna fengu skammbyssu að gjöf frá Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta við lok leiðtogafundar NATO í Ankara í gær. Nafn hvers og eins leiðtoga var áletrað á byssuna sem sá fékk að gjöf og fylgdi kassi af skotfærum með, auk græja til að hreinsa byssuna.

Innlent
Fréttamynd

Krist­rún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“

Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi lauk í dag en þar fór Bandaríkjaforseti mikinn og hélt áhuga sínum á Grænlandi til streitu. Forsætisráðherra segir mikla hlýju hafa einkennt fundinn og vel fór á milli hennar og Donalds Trump. 

Innlent
Fréttamynd

Sneri sér við, greip í spaðann á Krist­rúnu og gekk út

Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins fór fram í Ankara í Tyrklandi í gær og í morgun en Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur farið mikinn þar. Athygli vakti að eftir myndatöku með leiðtogum bandalagsins sneri Trump sér við og tók í spaðann á Kristrúnu Frostadóttur en engum öðrum.

Innlent
Fréttamynd

Um­mæli Trump um Græn­land þurfi ekki að koma á ó­vart

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland þurfi ekki að koma á óvart. Hún segist þó vongóð um að farsæl lausn náist þar sem formlegur vinnuhópur bandarískra, danskra og grænlenskra stjórnvalda sé starfandi.

Innlent
Fréttamynd

Tólf Evrópu­ríki sögð ætla að smíða nýja lang­dræga eld­flaug

Tólf Evrópuríki hyggjast taka saman höndum og verja 37 milljörðum punda á næstu tíu árum til að smíða nýja langdræga eldflaug. Frá þessu greindu stjórnvöld á Bretlandseyjum, sem fara fyrir verkefninu en það verður til umræðu á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Ankara í Tyrklandi í dag.

Erlent
Fréttamynd

Trump sló harðan tón við upp­haf leið­toga­fundar NATO

Bandaríkjaforseti hefur ítrekað á ný að Grænland eigi að tilheyra Bandaríkjunum. Hann lét í ljós vonbrigði og óánægju með viðbrögð NATO-ríkja við stríðinu í Íran. Hann hafi lagt próf fyrir evrópsk bandalagsríki þegar hann hafi óskað eftir stuðningi þeirra.

Erlent
Fréttamynd

NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu

Utanríkisráðherra segir aðild Íslands að NATO mikilvæga og nýlegar árásir Rússa á Úkraínu dragi fram mikilvægi þess að sýna fram á samheldni bandalagsins. Ísland, meðal annarra aðildarríkja, ætli að auka stuðning við Úkraínu. 

Innlent
Fréttamynd

„Mjög er horft til þess sem Banda­ríkja­for­seti segir“

„Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir.“ Þetta segir Albert Jónsson, sérfræðingur í alþjóðamálum og fyrrverandi sendiherra, um yfirstandandi leiðtogafund NATÓ sem fer fram í Ankara á Tyrklandi. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra eru mættar til Tyrklands til að sækja fundinn.

Innlent
Fréttamynd

Krist­rún og Þor­gerður á NATO-fundinum í Ankara

Aukin framlög til varnarmála, jafnari skipting byrða og stuðningur við Úkraínu er talinn verða í forgrunni á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Ankara í Tyrklandi í dag. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sækja fundinn fyrir hönd Íslands.

Innlent