Innlent

Hóta tollum vegna hval­veiða og hægri stjórn virðist fallin

Telma Tómasson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á slaginu tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á slaginu tólf. vísir

Fjölbreytttur hádegisfréttatími er framundan á Bylgjunni, en fyrst verður fjallað um hvalveiðar.  Stjórnvöld Vestanhafs hafa hótað því að leggja tolla á íslenskan innflutning vegna veiðanna, samkvæmt heimildum fréttastofu. Þá hafa hótanir einnig borist frá Evrópusambandsríkjum. Atvinnuvegaráðherra hyggst leggja til að hvalveiðar verði bannaðar í frumvarpi sem verður lagt fram eftir áramót og segir bæði viðskiptahagsmuni þjóðarinnar og dýravelferð undir í málinu.

Þá verður ítarlega farið yfir stöðuna í sænskum stjórnmálum eftir þingkosningar í gær. Allt útlit er fyrir að ríkisstjórn hægri manna í Svíþjóð sé fallin en endanleg niðurstaða þingskosninganna verður þó ekki ljós fyrr en á miðvikudag. Stjórnmálafræðingur við Háskólann í Malmö segir að framundan sé stjórnarmyndunarmaraþon.

Fyrirhugað fiskeldi Kaldvíkur í Seyðisfirði er hitamál og gaf Matvælastofnun út rekstrarleyfi fyrir því í síðustu viku. Formaður heimastjórnar Múlaþings segir það hafa komið sér og öðrum fulltrúum Múlaþings í opna skjöldu að starfsleyfi til sjókvíaeldis í firðinum hafi verið gefðið út. Það séu vonbrigði að frumvarp um breytingar á lögum um lagareldi hafi ekki gengið í gegn á síðasta vorþingi.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 14. september 2026

Við greinum einnig frá því að fjöldi ferðamanna hér á landi í sumar dróst lítilega saman á milli ára og sólmyrkvinn dró ekki eins marga til landsins og menn vonuðu, að sögn ferðamálastjóra. Ferðaþjónustan sé þó nokkuð sátt við sumarið miðað við það óvissuástand sem hefur ríkt í heimsmálunum.

Landsmenn ættu að nýta daginn í dag og morgundaginn í að spóka sig um úti og hoppa á trampólínum áður en haustveðrið mætir með nokkrum hvelli á miðvikudag. Veðurfræðingur segir von á talsverðri rigningu og hvössum vindum.

Ítarlegur sportpakki er á sínum stað og fer Henry Birgir íþróttafréttamaður yfir umdeildan leik í enska boltanum og annan hasar, auk þess sem greint verður frá því sem framundan er.

Umsjónarmaður hádegisfrétta er Telma Tómasson en þær eru sagðar á Bylgjunni á slaginu klukkan tólf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×