Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Aron Guðmundsson skrifar 16. september 2026 10:01 JJ Gabriel í leik með undir 21 árs liði Manchester United vísir/getty Nokkur af stærstu liðum Evrópu hafa áhuga á að fá vonarstjörnu Manchester United, JJ Gabriel, til liðs við sig. Leikmaðurinn vill fara frá félaginu.
Það er The Athletic sem greinir frá en JJ Gabriel er af mörgum talinn efnilegasti leikmaður Manchester United um þessar mundir og eitt mesta efni sem hefur komið úr akademíu félagsins seinni ár. Real Madrid, Barcelona, Paris Saint-Germain og Bayern Munchen eru öll sögð vinna nú að því að fá þennan 15 ára gamla leikmann til liðs við sig. JJ Gabriel hefur greint forráðamönnum Manchester United frá því að hann vilji fara frá félaginu sem hyggst ekki hleypa stráknum unga svo auðveldlega frá sér. Málið hefur teygt sig upp í efsta lag stjórnenda hjá félaginu og er eigandi Manchester United, Sir Jim Ratcliffe, sagður vita af því. Þá séu nokkrir af æðstu stjórnendum félagsins að reyna að sannfæra JJ Gabriel um að halda kyrru fyrir. Liðsfélagi JJ Gabriel hjá yngri liðum Manchester United og einn af efnilegri leikmönnum félagsins, Shea Lacey, virtist skjóta óbeint á JJ Gabriel í færslu á samfélagsmiðlinum X þar sem að hann birti mynd af sér við merki Manchester United. ❤️ pic.twitter.com/eBXNtdHXCp— Shea lacey (@Shealacey10) September 15, 2026 Samningur leikmannsins gildir til næsta sumars en þar sem hann er hvorki á skólastyrk né hluti af fullu starfi hjá United, vegna þess að hann er í heimaskóla, gæti hann tæknilega séð farið á 16 ára afmælisdegi sínum ef hann er með írskt eða kýpverskt vegabréf. Slíkt myndi gera honum kleift að ganga til liðs við erlent félag tveimur árum fyrr en enskir liðsfélagar hans mættu gera það við átján ára aldurinn. Faðir JJ Gabriel er fyrrverandi landsliðsmaður Írlands og þá er móðir hans með kýpverskan uppruna.
Enski boltinn Manchester United FC Barcelona Real Madrid CF Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Sjá meira