Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Kjartan Kjartansson skrifar 16. september 2026 22:00 Matvælastofnun barst ábending frá gæslukonu hundanna um aðbúnað þeirra á heimili eiganda sem var erlendis. Vísir/Vilhelm Eigandi tveggja hunda sem hann skildi eftir í sóðaskap á heimili sínu á meðan hann var erlendis var sviptur vörslu á þeim varanlega. Kona sem var fengin til þess að huga að hundunum tilkynnti um aðstæður þeirra til yfirvalda.
Fulltrúar Matvælastofnunar fóru og sóttu hundana í fylgd lögreglu á heimili í umdæmi lögreglustjórans á Suðurnesjum í september í fyrra eftir að stofnunni barst ábending í síma um slæmar aðstæður þeirra. Gæslukona hundanna benti Matvælastofnun á ástandið. Hún hafði tekið að sér að vitja hundanna þrisvar á dag á meðan eigandinn væri í tæpar fjórar vikur erlendis. Hún sagði að hundarnir væru lokaðir inni í litlu herbergi sem væri fullt af lausamunum klukkutímum saman. Sagðist hún ekki treysta sér lengur til þess að gæta hundanna við aðstæðurnar á heimilinu. Jafnvel áður en eigandinn fór erlendis hefðu hundarnir fengið litla hreyfingu og þeim stundum haldið í búrum á heimilinu. Höfðu áður haft afskipti af dýrahaldi mannsins Ástandi heimilisins var lýst ítarlega í lögregluskýrslu og skoðunarskýrslu fulltrúa Matvælastofnunar. Rusl var á gólfi íbúðarinnar, sláttuvél í stofu, óhreint leirtau í eldhúsi og eldhúsborð var ekki sýnilegt fyrir rusli. Þá var vond lykt í svefnherbergi, gólfið þakið fatnaði og rusli auk þess sem sængurföt voru mygluð. Í þvottahúsi hafi ekki verið unnt að sjá gólfið vegna fatnaðar. Matvælastofnun tilgreindi tvö alvarleg frávik sem hefðu fundist, annars vegar vegna almennrar meðferðar á hundunum, aðbúnað þeirra og umönnun og hins vegar varðandi getu, hæfni og ábyrgð eigandans. Vísaði stofnunin til þess að mikil óhreinindi væru í vistarverum hundanna, þar á meðal rusl, matarumbúðir og plast, auk þess sem lyfjaumbúðir hafi verið á gólfi. Hundarnir hefðu nagað ruslið og auk þess nagað snúrur og millistykki sem tengd voru við rafmagn svo af hefði hlotist slysahætta. Þá hafi verið ljóst að hundarnir hefðu gert þarfir sínar innandyra í einhvern tíma. Einnig var vísað til þess að Matvælastofnun hefði áður haft afskipti af dýrahaldi kæranda og farið fram á að daglegum vistarverum hundanna yrði haldið hreinum og án slysahættu. Á þeim tíma hefðu verið gerðar úrbætur en ástandið væri aftur komið í sama horf. Samdóma álit lögreglu og starfsmanna Matvælastofnunbar var að aðbúnaður og ástand hundanna hefði verið óboðlegt og því hefði verið nauðsynlegt að fjarlægja þá. Rusl, skítur og notaðar bleyjur út um allt Gæslukonan tjáði Matvælastofnun jafnframt að maðurinn og eiginkona hans hefðu verið dugleg að hreyfa hundana áður fyrr, einkum áður en þau eignuðust barn. Eftir það hefði hreyfing hundanna dregist verulega saman, úr daglegum gönguferðum í ferðir einu sinni í viku eða jafnvel sjaldnar. Um viku áður en eigandi hundanna fór erlendis sagðist gæslukonan hafa litið eftir hundunum og þá hefði henni blöskrað ástandið á heimilinu. Í hundaherberginu hefði ástandið verið skelfilegt en þar hafi verið dót, rusl, kúkur, piss, æla, notaðar bleyjur og matarleifar út um allt gólf. Í hundabúrinu hafi verið sæng sem var svört af myglu og hafi hún látið kæranda vita af því og hann fallist á að henni yrði hent. Kenndi gæslukonunni um Eigandi hundanna mótmælti sviptingunni og kærði ákvörðun Matvælastofnunar til atvinnuvegaráðuneytisins. Vísaði hann sökunni á ástandinu á heimilinu á gæslukonu hundanna. Mótmælti hann því að byggt væri á einhliða frásögn hennar um aðstæður. Viðurkenndi maðurinn þó að annar hundanna hefði verið í yfirþyngd og klóhirðu hans hefði verið ábótavant. Umhirða á feldi hins hundsins hefði einnig verið verulega ábótavant en maðurinn bar því við að hann hefði ekki getað fengið tíma fyrir hann í snyrtingu. Atvinnuvegaráðuneytið hafnaði kæru hundaeigandans sem taldi sig órétti beittan.Vísir/Vilhelm Í úrskurði ráðuneytisins kemur fram að maðurinn hafi verið skjölstæðingur úrræðis sem fólst meðal annars í að veita stuðning vegna tímabundinna heimilisaðstæðna. Braut lög um velferð dýra Ráðuneytið hafnaði rökum mannsins. Skýrslur lögreglu og Matvælastofnunar sýndu að aðstæður og aðbúnaður hundanna hefði ekki verið í samræmi við lög um velferð dýra. Ekki væri heldur hægt að fallast á að aðstæðurnar á heimilinu hefðu skapast á þeim stutta tíma sem gæslukonan fór um umráð hundanna. Benti ráðuneytið á að Matvælastofnun hefði áður haft afskipti af dýrahaldi eigandans og aðstæðum á heimilinu. Því staðfesti ráðuneytið ákvörðun Matvælastofnunar um að svipta hann vörslu hundanna varanlega. Hundunum var komið fyrir hjá öðrum.
Dýraheilbrigði Stjórnsýsla Úrskurðar- og kærunefndir Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira