Grunaður barnaníðingur gengur laus Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 16. september 2026 22:12 Landsréttur felldi gæsluvarðhaldsúrskurðinn úr gildi. Vísir/Viktor Freyr Landsréttur felldi úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms um að grunaður barnaníðingur þyrfti að sæta gæsluvarðahaldi. Hann gengur því frjáls.
Maðurinn var fyrst handtekinn þann 7. september og var hann sakaður um kynmök við barn undir fimmtán ára aldri og nauðgun. Brotið getur varðað allt að sextán ára fangelsisvist. Hann hefur farið í nokkrar skýrslutökur og játað að hafa í nokkur skipti haft samræði og önnur kynferðismök við brotaþola. Það átti fyrst að hafa átt sér stað um páskana 2026 og verið alls um tíu skipti. Að lokinni skýrslutöku var maðurinn látinn laus en tveimur dögum síðar fór lögreglan fram á það að hann myndi sæta gæsluvarðahaldi til 7. október 2026. Héraðsdómur Norðurlands eystra féllst á gæsluvarðhaldið á þeim forsendum að sterkur grunur væri á alvarlegu kynferðisbroti gegn barni og væri það með tilliti til almannahagsmuna. Fyrir dómi gaf brotaþoli skýrslu með aðstoð sérhæfðra starfsmanna Barnahúss. Hún lýsti því að hún og sakborningurinn hefðu um sex til átta sinnum stundað kynmök. Ekki kemur fram í dómnum hver aldur stúlkunnar og mannsins er en mat dómarinn svo að þroskamunurinn væri það mikill að sakborningi væri ljóst eða hefði átt að vera ljóst að hún gæti ekki veitt samþykki. Fulltrúi Barnaverndarnefndar sagði einnig fyrir dómnum að það væri erfitt að halda brotaþola og sakborninginum aðskildum en hún vildi eiga í samskiptum við hann. Það kom fram að hann hefði ekki átt í neinum samskiptum við hana eftir að rannsókn hófst. Gæsluvarðhaldsúrskurðinum var síðan áfrýjað til Landsréttar sem taldi að ekki hefði verið sýnt nægilega fram á að það væri í þágu almannahagsmuna að maðurinn væri í haldi. Maðurinn gekk því laus þegar úrskurðurinn var felldur úr gildi 14. september.
Dómsmál Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira