Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Aron Guðmundsson skrifar 17. september 2026 11:03 Gary Neville var hluti af hinum fræga 92 árgangi hjá Manchester United og átti glæsta tíma hjá félaginu. Hann hefur áhyggjur af því hvernig fulltrúar hins 15 ára gamla JJ Gabriel eru að fara með hans mál. Vísir/Getty Gary Neville, sparkspekingur og fyrrverandi leikmaður Manchester United, gerir alvarlegar athugasemdir við það hvernig fulltrúar ungstirnisins JJ Gabriel hafa hagað málum hans upp á síðkastið.
Það varð að frétt í öllum helstu miðlum Bretlands á dögunum að hinn 15 ára gamli JJ Gabriel, ungstirni hjá Manchester United, vildi fara frá félaginu. Mörg af stærstu liðum Evrópu á borð við Real Madrid, Barcelona, Bayern Munchen og Manchester City eru öll sögð hafa áhuga á því að fá strákinn til liðs við sig. Staða stráksins og það hvernig málum hans hefur verið háttað upp á síðkastið var til umræðu í hlaðvarpsþættinum Stick to Football þar sem Gary Neville gerði alvarlegar athugasemdir varðandi það hvernig fulltrúar leikmannsins hafa hagað málum hans. „Það sem ég er hissa á er ekki sú staðreynd að Manchester United væri annaðhvort ekki að spila honum í leikjum aðalliðsins eða það að hann telji sig eiga heima í leikmannahópi aðalliðsins. Slíkt getur verið staðan,“ sagði Gary Neville og hélt áfram: „Heldur varð ég hissa á því að það kom þessi risatilkynning frá þekktum blaðamanni og að þessum tíðindum hafi verið lekið. Félagið mun ekki hafa lekið þessu, það væri ekki hagur félagsins að gera það. Fulltrúar leikmannsins hafa klárlega lekið þessu. Þeir ákváðu að vilja varpa kjarnorkusprengju inn í umræðuna hvað varðar stöðu hans og gera öllum það ljóst að JJ Gabriel vilji fara frá Manchester United.“ Slíkt vekur upp áhyggjur hjá Neville. „Ég hef áhyggjur af því að fulltrúar leikmannsins telji þetta honum fyrir bestu. Þeir bera ákveðna umhyggjuskyldu gagnvart stráknum. Þessi 15 ára strákur var í öllum helstu blöðum landsins. Hvernig eru þið að hugsa um þennan strák? Mér er sama hvort þið teljið að hann eigi að spila eða ekki. Af hverju ættuð þið að vilja að þetta væri fréttaefni í öllum helstu blöðum landsins?“ Umræðuna í Stick to Football má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Manchester United Real Madrid CF FC Barcelona Manchester City Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Sjá meira