Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 17. september 2026 12:01 Finnbjörn Hermannsson segir ASÍ ítrekað hafa reynt að fá Wolt til þess að gera samninga við sína starfsmenn. Vísir/Vilhelm Forseti ASÍ segir fullreynt að semja við Wolt um að gera kjarasamninga við sendla. Sendlarnir lögðu niður störf í gær og segja laun sín hafa lækkað um fjörutíu prósent. Forseti ASÍ segir þá áður hafa fengið 1500 krónur á klukkutímann, starfsemin standist hvorki lög né reglur í launamálum. Dæmi eru um að sendlar hjá Wolt á Íslandi hafi lánað hvor öðrum kennitölur og hafi ekki atvinnurréttindi, samkvæmt heimildum fréttastofu.
Sendlarnir söfnuðust saman fyrir utan höfuðstöðvar Wolt á Íslandi í Ármúla í gærmorgun og mótmæltu launakjörum. Þeir segja launin hafa lækkað um fjörutíu prósent frá því í upphafi ársins. Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ segir að verkalýðsfélög hafi ítrekað reynt að ná samkomulagi við Wolt um að gerður sé kjarasamningur við starfsmenn en því hafi verið hafnað. „Þegar við töluðum við þá á sínum tíma þá vorum við að tala um tölur sem að, þegar við vorum búin að reikna út þessi hefðbundnu launatengdu gjöld eins og virðisaukaskatt frá, orlof, veikindarétt og annað þess háttar þá voru þeir með eitthvað um 1500 krónur á tímann. Og ef það hefur lækkað um fjörutíu prósent þá sjáið þið að þetta er náttúrulega ekki fólki bjóðandi þessi kjör.“ Miðað við fullyrðingar þeirra nú hafi þau því lækkað um sexhundruð krónur, séu nú 900 krónur á tímann. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru dæmi um að sendlar hafi lánað hvor öðrum kennitölur til að starfa fyrir Wolt, þá sérstaklega í upphafi starfseminnar árið 2023 áður en lögregla jók eftirlit. Hafa stéttarfélögin kannað þetta? „Við höfum heyrt þessar sögusagnir líka, við höfum enga staðfestingu fyrir því, þannig ég get eiginlega ekki tjáð mig um þá hlið málsins en það sem mér finnst vera grunnurinn í þessu er að það eru neytendur sem halda þessu gangandi, þannig ef við ætlum að reyna að stoppa þetta þá stoppum við þetta fyrst og síðast með neytendum.“ Fullreynt sé að semja við fyrirtækið, að sögn Finnbjörns, sem kveður alveg ljóst að um starfsmenn fyrirtækisins sé að ræða þar sem þeir hafi ekki vinnu annars staðar. Er þessi starfsemi þá í raun fyrir utan lög og reglur? „Hún er algjörlega fyrir utan lög og reglur vegna þess að það eru lágmarkslaun í landinu. Og það er verið að borga sko bara brotabrot af þeim lágmarkslaunum sem að þeim ber að fá. Þannig að það er ekki hægt að segja að þau séu að keyra eftir neinum lögum sem að eru hérna á landinu og reyndar er þetta sko samevrópskt eða alheimsvandamál. Við erum í tengslum við kollega okkar á Norðurlöndunum sem eru að slást um sömu hlutina.“
Kjaramál Heimsendingarþjónusta ASÍ Veitingastaðir Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira