Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. september 2026 22:12 Paul Watson er formaður Paul Watson-samtakanna. Epa Paul Watson, leiðtogi Paul Watson-samtakanna sem berjast gegn hvalveiðum á Íslandi, segir að Aðgerð 86 sé ekki lokið. Málið muni halda áfram fyrir dómstólum Íslands. „
Aðgerð 86 hefur heppnast mjög vel,“ segir Watson í myndskeiði sem var birt á Facebook-síðu Paul Watson-samtakanna. Aðgerð 86 er vísun í atvik árið 1986 þegar tveir menn komu til landsins og sökktu tveimur hvalveiðiskipum í Reykjavíkurhöfn. Hópur fólks sneri aftur í lögsögu Íslands nú í sumar undir merkjum samtakanna á skipi sem kallast Bandero. Markmið þeirra var að stöðva hvalveiðar hér á landi. Eftir nokkrar vikur af siglingum í kringum landið, með einu hléi vegna veikinda skipverja, höfðu skipverjar afskipti af hvalveiðiskipinu Hval 9 sem var þá úti á sjó. Þeir reyndu að kasta netadrósum og víraflækjum í skrúfu skipsins. Landhelgisgæslan taldi öryggi sjómanna ógnað og sendi fulltrúa Landhelgisgæslunnar og sérsveitarmenn um borð í Bandero. Þeir tóku yfir skipið og sigldu því til Reykjavíkurhafnar. Öllum skipverjum var birt ákvörðun um brottvísun úr landi og endurkomubann. Bandero var síðan siglt til Akraness og kyrrsett að kröfu Hvals hf. sem taldi sig eiga skaðabótakröfu á hendur eiganda skipsins. „Mjög gott leikrit“ Watson reifar þessa sögu í myndskeiðinu og minnist sérstaklega á þegar sérsveitarmennirnir komu um borð í skipið. „Þetta var mjög gott leikrit. Þetta var nákvæmlega það sem við þurftum fyrir söguna og fyrir vikið verður fólk um allan heim æ betur meðvitað um áframhaldandi ólöglega starfsemi Kristjáns Loftssonar,“ segir hann. Enginn skipverjanna hafi verið ákærður en lögreglan hafi gert síma, myndavélar og fartölvur þeirra upptækar án heimildar. Einnig hafi þeim verið neitað um rétt þeirra til að fá lögmann. „Við erum því með mjög gott dómsmál í höndunum og munum halda því áfram. Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum Íslands. En þessi barátta heldur áfram og við munum halda áfram að berjast gegn drápi á hvölum.“ Þá kallar hann Kristján Loftsson, sem er forstjóri og eigandi Hvals hf., raðhvalamorðingja. „Við munum halda þessu áfram þar til við höfum stöðvað þetta og við munum stöðva þetta,“ segir Watson. Vert er að taka hér fram að Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hyggst leggja fram frumvarp í febrúar sem bannar hvalveiðar. Stjórnvöld vestanhafs hafa hótað því að leggja tolla á íslenskan innflutning vegna veiðanna.
Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Hvalir Hvalveiðar Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira