Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Sindri Sverrisson skrifar 18. september 2026 08:30 Alexander Isak er strax kominn með þrjú mörk eins og á allri síðustu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni. Getty/Alfie Cosgrove Sænski framherjinn Alexander Isak er þegar búinn að skora jafnmörg mörk á þessari leiktíð eins og á allri fyrstu leiktíð sinni með Liverpool, enda settu meiðsli þá stórt strik í reikninginn. Hann efaðist aldrei um þá ákvörðun að fara til félagsins.
Í viðtali við BBC segir Isak það hafa verið „auðvelda ákvörðun“ að fara til Liverpool sem keypti hann frá Newcastle fyrir metfé í breskum fótbolta fyrir rúmu ári síðan, eða 125 milljónir punda. „Liverpool er risafélag og allt varðandi félagið gerði þetta frekar augljóst,“ sagði Isak. „Og metnaðurinn og viljinn sem félagið sýndi til að fá mig var líka stór hluti af þessu,“ bætti hann við. Isak missti af stórum hluta síðustu leiktíðar eftir að hafa fótbrotnað og var þá frá keppni frá desember og fram í apríl, en fram að því hafði hann einnig átt erfitt uppdráttar. Þar spilaði sjálfsagt inn í að hann hafði misst af undirbúningstímabilinu og ekki fengið að æfa með Newcastle en haldið sér við með því að æfa hjá sínu gamla félagi Real Sociedad. Sagði hann Newcastle hafa svikið loforð í sinn garð. Eftir magnað tímabil með Newcastle 2024-25 þar sem hann skoraði 23 mörk urðu mörkin því aðeins þrjú á síðustu leiktíð. Eftir aðeins fjórar umferðir á þessari leiktíð er Isak einnig kominn með þrjú mörk og aðeins Erling Haaland með fleiri í deildinni, eða fjögur. Aðspurður hvort hann hefði aldrei fengið bakþanka á síðustu leiktíð svaraði Isak: „Nei, aldrei. Ég myndi aldrei hugsa þannig. [Fótbrotið] var erfitt. Allir sem hafa verið lengi frá vegna meiðsla vita það. En þegar maður er á góðum stað og líður vel þá er maður ekkert að hugsa til baka því það gagnast ekkert. Ég hlakka bara til og er mjög bjartsýnn og spenntur fyrir þessu tímabili og því sem er í vændum hjá okkur,“ sagði Isak sem stóð sig einnig vel með sænska landsliðinu á HM í sumar og skoraði eitt mark og gaf þrjár stoðsendingar. Liverpool á fyrir höndum útileik gegn Bournemouth á sunnudaginn, þar sem stjórinn Andoni Iraola mætir á sinn gamla heimavöll.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Sjá meira