Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 18. september 2026 08:25 Espen Barth Eide utanríkisráðherra Noregs. EPA/TOMS KALNINS Norðmenn vilja nútímavæða og efla eftirlit með EES-samningnum og segir Espen Barth Eide utanríkisráðherra Noregs að breytingarnar verði þær stærstu síðan samningurinn var innleiddur árið 1994. Ástæðan er breyttur heimur. Ráðherrann kynnti áherslubreytingarnar í dag á blaðamannafundi ásamt Cecilie Myrseth atvinnuvegaráðherra Noregs. „
Þetta er stærsta breytingin og nútímavæðing okkar vinnuhátta þegar kemur að EES-málum síðan 1994, það er að segja síðan EES varð til,“ sagði Eide, að því er fram kemur í umfjöllun norska miðilsins TV2. Hann segir vinnuna fela í sér fjórar megináherslur, að Norðmenn rýni fyrr í lagasetningar á vegum Evrópusambandsins, skýrari forgangsröðun, aukna skilvirkni í stjórnsýslu og aukna stafræna væðingu samningsins. Þá á að auka eftirfylgni með reglugerðum ESB sem gætu fallið undir EES en hafa ekki verið teknar upp í samningnum. Þá vill norska ríkisstjórnin koma á fót kerfi sem tryggi aðkomu Norðmanna að reglusetningu þegar vinna við hana hefst, en ekki einungis eftir að hún hefur tekið gildi í Evrópusambandinu, líkt og eigi við í dag. „Hingað til hefur umræða um hugsanlegar aðlaganir hafist á tímapunkti þegar ferlum ESB er löngu lokið og þegar möguleikar til áhrifa og breytinga eru í lágmarki því vinnu ESB er þá lokið. Það er miklu snjallara að koma inn á fyrri stigum,“ hefur TV2 eftir norska utanríkisráðherranum. Núverandi ferli gæti ekki norskra hagsmuna nægilega vel Utanríkisráðherrann segir að ástæðan fyrir breytingunum sé breytt staða í alþjóðamálum. Samningurinn frá 1994 hafi verið búinn til fyrir annan heim. „Við lifum í mun hættulegri og kröfuharðari heimi. Margt af því sem við gátum tekið sem sjálfsögðum hlut árið 1994 er ekki lengur hægt að taka sem sjálfsögðum hlut,“ segir ráðherrann. Hann segir Noreg í erfiðri stöðu í slíkum heimi. TV2 hefur eftir honum að EES-samningurinn sé mikivægasti samningur Noregs. Breytingarnar séu gerðar með það í huga að standa vörð um norska hagsmuni. Hann segir núverandi ferli við innleiðingu reglugerða í EES-samninginn ekki gæta norskra hagsmuna nægilega vel. Þá kemur fram í umfjöllun miðilsins að nefnd á vegum norska þingsins hafi lagt til að norska ríkisstjórnin hafi samráð mun fyrr við þingið bæði fyrir og eftir að reglugerðir eru samþykktar af ESB. Þá segir að nýlega hafi þingið samþykkt að gerð sé svokölluð „nágrannakönnun“ á nýjum ESB-reglum, það er samanburður á framkvæmd reglanna í öðrum löndum, sérstaklega á Norðurlöndunum.
EES-samningurinn Noregur Evrópusambandið Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Sjá meira