„Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Freyja Þórisdóttir skrifar 18. september 2026 22:59 Starfsmaður Vegagerðarinnar á Patreksfirði segir að hann hefði að öllum líkindum ekki tekið eftir hvalrekanum nema af því að erlendir ferðamenn höfðu stöðvað bíl sinn úti í kanti til þess að labba að hræinu og skoða það. Aðsend/Vísir/Vilhelm Starfsmaður Vegagerðarinnar á Patreksfirði segir andarnefjuna sem liggi á Skeiðsnesi í Kjálkafirði ekki vera þá fyrstu sinnar tegundar sem reki á land á Vestfjörðum í sumar. Hann telji hvalreka hafa verið tíðari á svæðinu í sumar en áður sem sé miður enda langur og hræðilegur dauðdagi. Dýrið sem hefur verið fjallað um hafi líklega rekið á land og drepist fyrr en áður hefur komið fram. „
Þetta var í gær, ekki í dag,“ segir Sverrir Fannberg en hann var á ferð um Kjálkafjörð í gær ásamt samstarfsmönnum sínum en þeir tóku eftir bíl sem hafði verið lagt út í kant og ákváðu að athuga hvort það hefði eitthvað komið upp á. Hringdu í lögregluna „Við vorum á leiðinni heim af vinnufundi innan úr Búðardal og tókum eftir að bílum var lagt út vegkantinum. Þannig að við stoppuðum til að athuga með þau,“ segir hann en þau hafi svo bent þeim á hvalshræið. Ferðamennirnir hafi verið búnir að hringja í lögregluna til þess að tilkynna henni um hvalrekann og Sverrir segir lögregluna hafa borið að garði skömmu á eftir þeim sjálfum. Hann tekur undir með íbúa á svæðinu sem sagði áverka á neðanverðum búk benda til þess að hún hafi háð dauðastríð á nesinu. „Það var háfjara þegar við komum að henni í gær. Þannig að maður má alveg geta sér til að eitthvað af þessum sárum sé eftir að hafa verið að berjast í steinunum.“ Augun glansi og verði svo hvít Hún hafi verið mjög illa farin og það hafi verið erfitt að horfa upp á dýrið sem hafi greinilega reynt eftir fremsta megni að komast lífs af. Sverrir telji að hún hafi dáið örskömmu áður en þau komu að hræinu. Hann meti það út frá því hvernig augun litu út. Andarnefjan hafi því ekki verið nýdauð í dag eins og áður kom fram. „Þú veist með þegar hlutir deyja þá svona glansar yfir augun af þeim fyrst, svo verða þau svona hvít en það hefur ekkert orðið þannig ennþá þarna á þessu tímabili.“ Vannst þú í Lottóinu? Sendu okkur fréttaskot. Einnig er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is „Það var svolítið hræðilegt að sjá þetta. Þetta er reyndar búið að vera dálítið oft á landinu núna í sumar,“ segir hann þá en hann muni eftir í það minnsta einu tilfelli þar sem andarnefju rak á land á Vestfjörðum í sumar. „Hún var nær Patreksfirði en það er búið að vera dálítið um hvalreka að synda upp í fjörur núna,“ segir Sverrir. „Það er náttúrulega alltaf leiðinlegt að sjá dýrin deyja svona. Út af því að þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma.“
Hvalir Dýr Vegagerð Vesturbyggð Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira