„Skólinn okkar er alltof lítill“ Smári Jökull Jónsson skrifar 22. september 2026 06:00 Guðlaug M. Pálsdóttir er skólastjóri FS en á myndinni til hægri má sjá gámana á lóð skólans. Vísir Skólastjóri Fjölbrautaskóla Suðurnesja segir stækkun verknámsaðstöðu skólans vera góð fyrstu skref í húsnæðismálum hans. Núverandi skólahúsnæði fyrir bóknám sé hins vegar alltof lítið.
Á dögunum var tilkynnt um undirritun viljayfirlýsingar Barna- og Menntamálaráðuneytisins annars vegar og bæjarstjóra Reykjanesbæjar fyrir hönd sveitarfélaga á Suðurnesjum hins vegar, um stækkun verknámsaðstöðu Fjölbrautaskólans á Suðurnesjum. Undirritunin fór fram á 50 ára afmælishátíð skólans þann 12. september síðastliðinn og er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist upp úr áramótum en stækkunin mun nema að minnsta 1800 fermetrum. „Okkur líst ágætlega á en þetta eru auðvitað bara algjörlega fyrstu skrefin. Þetta er viljayfirlýsing um að Reykjanesbær taki að sér framkvæmdir fyrir hönd ríkis og sveitarfélaganna á svæðinu,“ sagði Guðlaug M. Pálsdóttir skólastjóri FS í samtali við Vísi. Gámarnir á lóð FS sem notaðir eru sem kennslustofur.Aðsend Í yfirlýsingu á vef ráðuneytisins er tekið fram að uppbyggingin sé hluti af atvinnustefnu stjórnvalda til að efla verk- og starfsnám. Tímalínan er þó nokkuð óljós. „Það var talað um áramót en ég veit þó ekki alveg. Ég ætla að vona að hönnunin fari af stað fljótlega en við erum auðvitað með skólann í gangi,“ sagði Guðlaug enn fremur. Ýmsilegt gengið á Undirbúningur að stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur staðið yfir undanfarin ár. Á þeim tíma hefur töluvert gengið á en fyrr á þessu ári sagði Kristján Ásmundsson skólastjóri starfi sínu lausu þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af fimm ára skipunartíma. Sagðist hann þá hafa fengið nóg af seinagangi varðandi húsnæðismál skólans. Guðlaug segist bjartsýn um að nú verði verkin látin tala. „Boltinn er kominn til Reykjanesbæjar þannig að við vonum það. Staðan er aðeins öðruvísi heldur en síðast, þetta er náttúrulega önnur viljayfirlýsingin sem skrifað hefur verið undir.“ Aðstaðan mjög hamlandi Hún segir mikla þörf á stækkun. „Alveg svakalega en það er ekki bara þörf á verknámsaðstöðu heldur líka bóknámsaðstöðu. Skólinn okkar er alltof lítill þannig að við erum líka með þrjá gáma fyrir utan hjá okkur fyrir bóknám,“ bætir Guðlaug við. Engar viðræður eru hafnar um frekari stækkun en Guðlaug segist búast við að FS sé kominn í einhverja röð hvað það varðar, þau séu ekki eini skólinn sem þörf sé á að stækka. „Það er vöntun á húsnæði hjá fleiri skólum en okkar skóli er að stækka mjög ört og við höfum ekki haldið í. Húsnæðið er alltof lítið.“ Fjölbrautaskóli Suðurnesja í Reykjanesbæ.Aðsend Auk gámanna þriggja á lóð skólans er rými í íþróttahúsinu einnig á leigu fyrir skólann. „Svo erum við með fótaaðgerðafræði upp á Ásbrú. Við viljum vera öll í sama húsi, að minnsta kosti tengd. Þetta er mjög hamlandi að þurfa að vera með gáma hérna fyrir utan og kennarar ekkert mjög spenntir að kenna þar.“ „Þetta reddast en þetta er ekki svona framtíðarlausn.“
Reykjanesbær Skóla- og menntamál Framhaldsskólar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira