Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Aron Guðmundsson skrifar 22. september 2026 07:54 Einar Jónsson segist hvorki vera betri né verri en aðrir þjálfarar hér heima og þó víðar væri leitað þegar kemur að hegðun hans á hliðarlínunni. Vísir/Diego Einar Jónsson, þjálfari Fram, vísar ummælum um sig og sína hegðun til föðurhúsanna og segir ómaklega vegið að bæði eftirlitsdómurum og formanni dómaranefndar HSÍ. Verið sé að búa til umræðu gegn honum og hans liði sem eigi engan rétt á sér.
Í þættinum Handkastið á dögunum gagnrýndi Guðjón Guðmundsson, sérfræðingur þáttarins, Einar og hegðun hans. „Mér finnst ljóður á leik Fram að því leytinu til að þjálfari liðsins, Einar Jónsson, er tuðandi í dómurum, tímavörðum og eftirlitsdómara um leið og leikurinn er flautaður á. Þetta er algjörlega óþolandi ástand fyrir þá sem eru að vinna á leiknum. Maður sér þetta hvergi í Evrópu og menn verða einfaldlega að taka á þessu,“ sagði Guðjón meðal annars í Handkastinu. „Algjörlega út úr korti“ Einar svaraði þessari gagnrýni í þættinum Mín skoðun í umsjón Valtýs Björns Valtýssonar í gær og var alls ekki sáttur. „Svona fullyrðingar eru algjörlega út úr korti,“ segir Einar um gagnrýni Guðjóns. „Ég horfi nú mikið á þýska boltann og veit ekki betur til þess en að Þýskaland sé enn þá í Evrópu. Kannski hefur það breyst. Þar láta þjálfarar verulega í ljós óánægju sína ef þeim finnst á sér brotið, dómgæslan léleg eða hvað það nú er. Ég held að ég sé nú hvorki verri né betri heldur en margir þjálfarar í deildinni hér heima og þó víðar væri leitað. Hvort sem horft sé á handbolta, körfubolta eða fótbolta.“ einar jónssonVísir/Anton Brink Í Handkastinu var Reynir Stefánsson, formaður dómaranefndar HSÍ, dreginn inn í umræðuna. „Ég veit að Reynir Stefánsson, formaður dómaranefndar, er Framari en þetta á ekki að leyfast. Einar er frábær þjálfari en þetta fer óstjórnlega í taugarnar á mér,“ sagði Guðjón. Einar segir að með þessu sé mjög ómaklega vegið að bæði eftirlitsdómurum leiksins og formanni dómaranefndar HSÍ. „Þar er verið að halda því fram að formaður dómaranefndar og jafnvel eftirlitsdómarar séu að hygla mér fremur en öðrum og að gera því skóna að formaður dómaranefndar sé Framari. Mér finnst þetta bara galin ummæli.“ Guðjón er ekki sáttur með það hvernig Einar hegðar sér á hliðarlínunni Sérfræðingar og blaðamenn geti talað eins og þeim sýnist. „En mér fannst þetta allavega lélegt og til þess fallið að búa til einhverja umræðu gegn mér og mínu liði sem á engan veginn rétt á sér.“ Vísar þessu til föðurhúsanna Menn hagi sér oft mjög misjafnlega en að það þurfi ekki að vera með einhverja viðkvæmni gagnvart því. „Þeir mega alveg hafa sína skoðun á því hvernig ég eigi að hegða mér eða ekki. En að fara að gera því skóna að formaður dómaranefndar sé eitthvað að hygla mér fremur en öðrum, eða að ég sé að haga mér verr heldur en aðrir þjálfarar eða að svona lagað sjáist nú bara ekki í Evrópu. Ég vísa því algjörlega til föðurhúsanna. Menn mótmæla, menn ganga eins langt og dómarinn leyfir og þar við situr. Ef ég fer yfir strikið, segi eitthvað eða geri eitthvað sem gerir það að verkum að ég fæ rautt spjald, bann eða eitthvað, þá er það bara þannig. Ég verð þá bara að taka ábyrgð á þeim gjörðum mínum. En á meðan svo er ekki þá er það bara svoleiðis. Mér finnst helvíti lélegt að menn séu að reyna að hafa áhrif á einhver svona mál. Tala nú ekki um að blanda formanni dómaranefndar inn í það. Algjörlega galið.“
Olís-deild karla Fram Handbolti HSÍ Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira