Sport

„Stundum ertu með hálf­vita sem þjálfara“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Leikmenn McVay svöruðu rækilega fyrir sig í nótt eftir tapið í fyrsta leik.
Leikmenn McVay svöruðu rækilega fyrir sig í nótt eftir tapið í fyrsta leik. Harry How/Getty Images

Sean McVay, þjálfari Los Angeles Rams, gerði grín að sjálfum sér á blaðamannafundi eftir stórsigur á New York Giants í nótt. Rams svöruðu fyrir erfitt tap í fyrsta leik.

Þrátt fyrir að vera án stjörnuútherjans Puka Nacua unnu Hrútarnir sérlega sannfærandi 28-6 sigur á Risunum frá New York á SoFi-vellinum í Los Angeles í gær.

Reynsluboltinn Davante Adams steig upp í fjarveru Nacua þar sem hann greip átta sendingar fyrir 195 stikum og skoraði tvö snertimörk.

Þá hjálpaði það Giants ekki að leikstjórnandinn Jaxson Dart meiddist á hné snemma leiks og Jameis Winston, sem tók við af honum, var ekki upp á sitt besta.

Dart virðist hafa sloppið með skrekkinn þar sem fregnir vestanhafs herma að hann hafi aðeins tognað á krossbandi en ekki slitið það.

Rams svöruðu fyrir tap fyrir San Francisco 49ers í fyrsta leik sem fram fór í Melbourne. Mikið var látið með nálgun Rams fyrir leikinn en samkvæmt rannsóknum sem liðið hafði unnið átti að vera betra að mæta stuttu fyrir leik og reyndu leikmenn að sofa í 17 klukkustunda löngu fluginu.

49ers mættu töluvert fyrr til Ástralíu og má segja að nálgun San Francisco-liðsins hafi verið hefðbundnari. Gert var þá grín að því hve kokhraustir Rams-menn voru með sína nálgun, áður en þeir töpuðu leiknum.

McVay var hress á blaðamannafundi eftir sigur næturinnar og sló á létta strengi undir lok hans þegar hann var spurður út í fyrstu umferðina.

„Stundum taparðu og stundum lærirðu. Og stundum ertu með hálfvita þjálfara (e. dumbass coach) sem gerir ferðaáætlun sem kemur þér í slæma stöðu,“ sagði McVay áður en hann gekk út af fundinum á meðan blaðamenn á staðnum hlógu vel og innilega að gríni McVay að sjálfum sér.

Öll umferðin í NFL-deildinni verður gerð upp í Lokasókninni sem er á dagskrá á Sýn Sport klukkan 20:00 í kvöld.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×