Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. september 2026 16:06 Benóný Harðarsson framkvæmdastjóri Fagfélaganna. Vísir/Arnar Meirihluti félagsfólks Fagfélaganna telur að gera eigi kröfur um frekari kjarabætur vegna forsendubrests kjarasamninganna. Stjórn Samtaka atvinnulífsins vill að kjarasamningurinn haldi en hafnar viðbrögðum sem fela í sér frekari kostnaðarauka.
Ný kjarakönnun hjá félagsfólki Fagfélaganna, sem samanstendur af RSÍ, VM og MATVÍS, sýnir að sjötíu prósent svarenda hafi ekki fengið kjarabætur umfram það sem samið var um í síðustu kjarasamningum. 23 prósent félagsmanna höfðu fengið slíka hækkun. „Ef niðurstöðurnar eru dæmigerðar fyrir aðrar stéttir launafólks er ljóst að það launaskrið sem fulltrúum atvinnurekenda verður tíðrætt um hefur aðeins náð til afmarkaðs hóps í samfélaginu,“ segir í tilkynningu frá Fagfélögunum. Þá eigi helmingur félagsfólks erfiðara með að ná endum saman nú en fyrir tveimur árum. Nær helmingur þátttakenda í könnuninni, sem voru 2230 talsins, sögðust eiga erfiðara með að ná endum saman og standa við fjárhagslegar skuldbindingar samanborið við fyrir tveimur árum síðan. Vildu helst launahækkanir Þegar félagsfólkið var beðið um að raða áherslum við endurskoðun kjarasamninga settu sjötíu prósent launahækkanir í fyrsta sæti. Þar á eftir settu flestir fleiri frídaga í annað sæti. Stjórn Samtaka atvinnulífsins sendi frá sér tilkynningu fyrr í dag þar sem kom fram að samtökin vildu að núverandi kjarasamningar haldi út samningstímann. Hins vegar höfnuðu þau viðbrögðum við forsendubresti kjarasamninga sem fæli í sér frekari kostnaðarauka. Þar með taldar eru launahækkanir. Í könnun þeirra kom fram að 34 prósent stjórnenda stærstu fyrirtækjanna gera ráð fyrir að fækka starfsfólki næsta hálfa árið. Hár launakostnaður sé ástæðan fyrir háu verðlagi. Stjórnin vill sömuleiðis að fyrirtæki haldi aftur af verðhækkunum og að ekki verði samið um ný vinnumarkaðstengd réttindamál. Einnig þurfi að styrkja umgjörð vinnumarkaðsins. Fréttin hefur verið uppfærð. Fyrst sagði að SA vildi semja um ný vinnumarkaðstengd réttindamál en rétt er að samtökin vilja ekki semja um ný vinnumarkaðstengd réttindamál.
Kjaramál Atvinnurekendur Verðlag Vinnumarkaður Stéttarfélög Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira