Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Samúel Karl Ólason skrifar 24. september 2026 10:22 Hundruð heilbrigðisstarfsmanna vantar í Austur-Kongó, þar sem ebóluveiran er enn í hraðri dreifingu. AP/Sebastien Kitsa Musayi Enn er ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó en skortur er á heilbrigðisstarfsfólki til að takast á við veiruna. Veiran hefur nú greinst í sjö héruðum landsins og fer tilfellum fækkandi í einhverjum þeirra en ástandið er verst í austurhluta landsins þar sem tilfellum hefur fjölgað um 73 prósent á þremur vikum.
AP fréttaveitan hefur eftir Marie Roseline Belizaire, yfirmanni neyðarviðbragða í Afríku hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnunni (WHO), að enn sé ekki búið að ná tökum á faraldrinum. Tilfellum hafi fækkað í einhverjum héruðum en þeim fari fjölgandi í öðrum. Í heildina er vitað til þess að 7.773 hafi smitast af ebólu og 3.759 hafi dáið. Bæði tilfellin og dauðsföll eru líklega mun hærri en opinberar tölur segja til um. Verður líklega mannskæðastur Innan veggja WHO er búist við því að faraldurinn muni taka fram úr Vestur-Afríkufaraldrinum sem stóð yfir frá 2014 til 2016 og er sá mannskæðasti í sögunni. Þá dóu rúmlega ellefu þúsund manns, að mestu í Gíneu, Líberíu og Síerra Leóne. Það sem hefur vakið sérstakar áhyggjur í þessum faraldri er að af þeim börnum sem smitast af ebólu hafa rúmlega sextíu prósent dáið. Hjá fullorðnum er hlutfallið fjörutíu prósent. Aðstæður í Austur-Kongó eru heilbrigðisstarfsmönnum verulega erfiðar. Öryggisástandið þar er sérstaklega slæmt og heilbrigðisstarfsmenn hafa ítrekað lagt niður störf vegna árása íbúa og vígahópa og vegna ógreiddra launa og lítils stuðnings frá yfirvöldum. Starfsmenn WHO segja að hundruð heilbrigðisstarfsmanna skorti á svæðið. Búið sé að reisa móttökustöðvar þar sem á að vera hægt að meðhöndla smitaða en ekki er hægt að manna þær allar og að fullu. Sautjándi faraldurinn Þetta er sautjándi faraldurinn í Austur-Kongó síðan ebóla greindist fyrst þar árið 1976. Talið er að veikin hafi fyrst borist í menn úr leðurblökum. Talið er að um fimmtán þúsund manns í Afríku hafi dáið vegna ebólu á undanförnum fimmtíu árum. Síðasta faraldri í Austur-Kongó lauk formlega í maí 2021. Þrjár mismunandi veirur valda ebólu og dreifast þær manna á milli með líkamsvessum. Ebóla getur valdið miklum blæðingum og dauða. Engin lækning er til gegn ebólu en helmingur þeirra sem smitast deyr, samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, en það hefur verið mismunandi milli faraldra. Til er bóluefni gegn einungis einni af veirunum sem valda ebólu. Þessi faraldur er vegna dreifingar Bundibugyo-veirunnar en ekkert bóluefni er til við henni, né meðferðarúrræði. Hún er sú sjaldgæfasta af veirunum þremur sem valda ebólu og hefur einungis tvisvar sinnum áður verið í dreifingu, svo vitað sé.
Ebóla Austur-Kongó Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Sjá meira