Fjöldi sjálfsvíga svipaður og fyrri ár Lovísa Arnardóttir skrifar 24. september 2026 14:05 Einn var undir 18 ára af þeim sem féllu fyrir eigin hendi í fyrra. Vísir/Lýður Valberg Árið 2025 voru sjálfsvíg á Íslandi 43 talsins eða 11,0 á hverja 100.000 íbúa. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Embættis landlæknis en embættið hefur birt tölur þess efnis. Af þeim voru 28 karlmenn og fimmtán konur. Einn var á barnsaldri, undir 18 ára, en flestir, 21 þeirra, á aldrinum 45 til 59 ára. 22 bjuggu á höfuðborgarsvæðinu og 21 utan þess. Í tilkynningu kemur fram að sé horft til síðustu fimm ára, það er tímabilsins 2021 til 2025, hafi sjálfsvíg að meðaltali verið 42 á ári eða 11,1 á hverja 100.000 íbúa. Í tilkynningu kemur fram að vegna fámennis þjóðarinnar geti litlar breytingar á fjölda valdið nokkrum sveiflum í dánartíðni milli ára. Því er mikilvægt að túlka ekki tölur fyrir eitt ár sem vísbendingu um fjölgun eða fækkun sjálfsvíga heldur horfa frekar á lengra tímabil. Ítarlegar tölur um sjálfsvíg má finna á vef Embættis landlæknis. Af mælaborði embættis landlæknis. Landlæknisembættið Opinber tölfræði um sjálfsvíg byggir á skráðum upplýsingum á dánarvottorðum einstaklinga með lögheimili á Íslandi við andlát, sem skráðar eru í dánarmeinaskrá landlæknis. Fjöldi sjálfsvíga tekur til andláta þar sem undirliggjandi dánarorsök á dánarvottorði er skráð sem vísvitandi sjálfsskaði (ICD-10 kóðar: X60–X84). Fólk á öllum aldri og af öllum kynjum falli fyrir eigin hendi Í tilkynningu embættisins er jafnframt bent á að sjálfsvígsforvarnir séu sameiginlegt verkefni margra ráðuneyta, stofnana og félagasamtaka. Tölur um sjálfsvíg veiti mikilvægar upplýsingar. Fólk á öllum aldri og af öllum kynjum falli fyrir eigin hendi. Í tilkynningu embættis landlæknis kemur jafnframt fram að Hjá Lífsbrú – miðstöð sjálfsvígsforvarna hjá Embætti landlæknis sé haldið utan um vinnu við sjálfsvígsforvarnir á Íslandi. Unnið sé eftir Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi 2025–2030. Áætlunin skiptist í sjö kafla og inniheldur 26 aðgerðir sem miða að því að efla sjálfsvígsforvarnir, bæta stuðning og meðferð og styrkja þekkingu og vitund um sjálfsvíg og sjálfsvígsforvarnir. Fjórum aðgerðum er lokið, unnið er að 13 aðgerðum og níu aðgerðir eru ekki hafnar. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Heilbrigðismál Geðheilbrigði Embætti landlæknis Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Sjá meira
Af þeim voru 28 karlmenn og fimmtán konur. Einn var á barnsaldri, undir 18 ára, en flestir, 21 þeirra, á aldrinum 45 til 59 ára. 22 bjuggu á höfuðborgarsvæðinu og 21 utan þess. Í tilkynningu kemur fram að sé horft til síðustu fimm ára, það er tímabilsins 2021 til 2025, hafi sjálfsvíg að meðaltali verið 42 á ári eða 11,1 á hverja 100.000 íbúa. Í tilkynningu kemur fram að vegna fámennis þjóðarinnar geti litlar breytingar á fjölda valdið nokkrum sveiflum í dánartíðni milli ára. Því er mikilvægt að túlka ekki tölur fyrir eitt ár sem vísbendingu um fjölgun eða fækkun sjálfsvíga heldur horfa frekar á lengra tímabil. Ítarlegar tölur um sjálfsvíg má finna á vef Embættis landlæknis. Af mælaborði embættis landlæknis. Landlæknisembættið Opinber tölfræði um sjálfsvíg byggir á skráðum upplýsingum á dánarvottorðum einstaklinga með lögheimili á Íslandi við andlát, sem skráðar eru í dánarmeinaskrá landlæknis. Fjöldi sjálfsvíga tekur til andláta þar sem undirliggjandi dánarorsök á dánarvottorði er skráð sem vísvitandi sjálfsskaði (ICD-10 kóðar: X60–X84). Fólk á öllum aldri og af öllum kynjum falli fyrir eigin hendi Í tilkynningu embættisins er jafnframt bent á að sjálfsvígsforvarnir séu sameiginlegt verkefni margra ráðuneyta, stofnana og félagasamtaka. Tölur um sjálfsvíg veiti mikilvægar upplýsingar. Fólk á öllum aldri og af öllum kynjum falli fyrir eigin hendi. Í tilkynningu embættis landlæknis kemur jafnframt fram að Hjá Lífsbrú – miðstöð sjálfsvígsforvarna hjá Embætti landlæknis sé haldið utan um vinnu við sjálfsvígsforvarnir á Íslandi. Unnið sé eftir Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi 2025–2030. Áætlunin skiptist í sjö kafla og inniheldur 26 aðgerðir sem miða að því að efla sjálfsvígsforvarnir, bæta stuðning og meðferð og styrkja þekkingu og vitund um sjálfsvíg og sjálfsvígsforvarnir. Fjórum aðgerðum er lokið, unnið er að 13 aðgerðum og níu aðgerðir eru ekki hafnar. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Heilbrigðismál Geðheilbrigði Embætti landlæknis Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Sjá meira