Sport

Loksins fót­bolti á innipúkadegi

Valur Páll Eiríksson skrifar
Það er sannarlega hægt að brosa sínu breiðasta og fylgjast með boltanum í kvöld.
Það er sannarlega hægt að brosa sínu breiðasta og fylgjast með boltanum í kvöld. Vísir/Getty

Það verður loksins hægt að horfa aftur á fótbolta á skjánum í kvöld og það á fyrsta haustlægðardegi ársins.

Andri Broddason átti sérlega erfitt með haustlægðina þegar hann þurfti að labba alla leið út í bíl í morgunsárið á meðan aðrir löbbuðu og hjóluðu í vinnuna.

Lægðin hafði sín áhrif á landsliðin okkar sem færðu sig úr Laugardalnum inn í hallir að æfa í dag.

Kvennalandsliðið, U21 landsliðið, Olís-deildin og stórleikir í Þjóðadeildinni í Besta sætinu þennan fimmtudaginn.

Heyra má þáttinn í spilaranum og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×