Sport

„Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Systkinin bæði í landsliðinu.
Systkinin bæði í landsliðinu. vísir/getty

„Þetta var bara geggjað og ég var bara sjúklega glaður,“ segir Orri Steinn Óskarsson, landsliðsfyrirliði íslenska A-landsliðs karla, í samtali við þá Val Pál Eiríksson og Aron Guðmundsson eftir blaðamannafund landsliðsins í Laugardalnum í dag. Orri er eldri bróðir Emilíu Óskarsdóttur.

Emelía, framherji Danmerkurmeistara Köge, var valin í íslenska landsliðshópinn sem mætir Króatíu í tveimur leikjum í fyrri umferð umspils um sæti á HM í Brasilíu. Fyrri leikurinn við Króatíu er á útivelli 9. október en sá seinni á Laugardalsvelli 13. október.

Emelía hefur aldrei áður spilað A-landsleik en hún fær nú tækifærið.

„Þetta er auðvitað bara geggjuð stelpa sem er búin að glíma við erfið meiðsli og að sjá hana glíma við þennan erfiða tíma og fá síðan kallið, maður bara springur úr stolti. Ég er mjög stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið.“

Klippa: Orri springur úr stolti



Fleiri fréttir

Sjá meira


×