Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 26. september 2026 14:03 Fjölnir Sæmundsson er formaður Landssambands lögreglumanna. Vísir/Arnar Þrátt fyrir að ákall um fækkun lögregluumdæma hafi ekki komið af öllu landinu telur formaður að breytingarnar séu til góða. Dómsmálaráðherra kynnti tillöguna í vikunni.
Dómsmálaráðherra kynnti tillöguna fyrir helgi en í henni felst að fækka lögregluembættum landsins úr níu í þrjú. Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna sem sat í nefnd um málið, segir að markmiðið með breytingunum sé að efla löggæslu og gera sterkari lögregluembætti. „Lögreglustöðvum var ekki að fækka og þetta á ekki að hafa nein áhrif á dagvistun lögreglumanna en lögreglustjórum fækkar auðvitað og það verða til aðstoðarlögreglustjórar í staðinn,“ segir Fjölnir. „Vonin er auðvitað kannski að þetta styrki embættin í að takast á við eins og náttúruhamfarir og slíkt og það sé auðveldara þá að flytja mannskap á milli ef þess er þörf.“ Ráðherrann sagði við kynningu tillögunnar að hún hefði fundið fyrir ákalli fyrir sameiningu meðal starfsfólks lögreglu. „Við höfum meira að segja gengið svo langt að við viljum hafa eitt lögregluembætti yfir allt landið þannig að ákallið hefur verið frá forystu lögreglumanna. En ég hef svo sem alveg heyrt að sérstaklega á Norðvesturlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum hafi ekki verið mikil hrifning með þetta,“ segir hann. „Þeir hafi tjáð ráðherra um það á fundi að þeir teldu það auðvitað ekki til góða fyrir sig en, en heilt yfir held ég að ákallið hafi nú verið að fækka lögregluembættum og styrkja þau.“ Litið var meðal annars til fjölda stöðugilda en flest stöðugildi, ef tillagan nær í gegn, verða í umdæmi lögreglunnar á suðvesturhorninu. „Ég held að embættin verði bara sterkari, að það verði betri mannauðsstjórn og betri fjárhagsstjórn á öllu,“ segir Fjölnir. Fulltrúar sambandsins hafi lengi kallað eftir breytingum í þágu mannauðsmála sem hafi ekki verið nægilega góð hjá minni embættum lögreglunnar. „Það hefur nú svona verið áherslan hjá okkur og það hefur verið það sem við höfum fengið frá lögreglumönnum til okkar inn á skrifstofuna.“
Lögreglan Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Fleiri fréttir Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Sjá meira