Handbolti

Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór

Andri Broddason skrifar
Haukur Þrastarsson var mikilvægur leikmaður í liði Rhein-Neckar Löwen í kvöld.
Haukur Þrastarsson var mikilvægur leikmaður í liði Rhein-Neckar Löwen í kvöld. Uwe Anspach/Getty Images

Haukur Þrastarson og félagar í Rhein-Neckar Löwen náðu að hefna sín á Melsungen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta karla í kvöld. Leikurinn endaði með 30-28 sigri Löwen en Melsungen vann liðið í framlengdum leik fyrr í vikunni.

Reynir Þór Stefánsson átti að vera alkunnugur mótherjum kvöldsins þegar hann mætti Rhein-Neckar Löwen. Hann spilaði lykilhlutverk í leiknum og var langmestan hluta leiksins inn á vellinum. Hann náði þó ekki að endurtaka sigurinn og voru Haukur og félagar einu marki yfir í hálfleik.

Leikurinn var gríðarlega jafn en Melsungen náði aldrei að nálgast heimamenn í Löwen í seinni hálfleik og endaði leikurinn á tveggja marka sigri Rhein-Neckar Löwen.

Reynir Þór skoraði síðasta mark Melsungen en hann var næstmarkahæsti leikmaður liðsins með fjögur mörk. Aaron Mensing var markahæstur en hann var með einu marki meira.

Haukur Þrastarson skoraði sex mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen sem gerði hann næstmarkahæsta leikmanninn í liðinu. Dani Baijens var markahæstur en hann náði að skora átta mörk. Haukur gaf einnig tvær mikilvægar stoðsendingar sem hjálpuðu liðinu að sækja sigur.

Þrátt fyrir að hafa tapað leiknum er Melsungen fyrir ofan Rhein-Neckar Löwen í þýsku úrvalsdeildinni en aðeins eitt stig er á milli liðanna. Melsungen er í sjötta sæti með sjö stig og Löwen er í áttunda sæti með sex stig.

Einnig í þýsku úrvalsdeildinni mætti Íslendingaliðið Magdeburg SG BBM Bietigheim þar sem Magdeburg vann öruggan 33-24 sigur. Bæði Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson skoruðu fjögur mörk fyrir Magdeburg sem er í þriðja sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×