Fótbolti

Sjáðu vörslurnar: „Há­kon var lang­besti ís­lenski leik­maðurinn“

Sindri Sverrisson skrifar
Hákon Rafn Valdimarsson var magnaður í marki Íslands gegn Eistlandi á laugardaginn.
Hákon Rafn Valdimarsson var magnaður í marki Íslands gegn Eistlandi á laugardaginn. vísir/Anton

Bjarni Guðjónsson og Kári Árnason dásömuðu markvörðinn Hákon Rafn Valdimarsson og sögðu hann langbesta leikmann Íslands í 1-1 jafnteflinu við Eistland í Þjóðadeildinni á laugardag.

Bjarni Guðjónsson og Kári Árnason dásömuðu markvörðinn Hákon Rafn Valdimarsson og sögðu hann langbesta leikmann Íslands í 1-1 jafnteflinu við Eistland í Þjóðadeildinni á laugardag.

Hákon sá við dauðafæri Eistlendinga í fyrri hálfleiknum og varði aftur frábærlega í seinni hálfleik sem og þegar hann varði vítaspyrnu gestanna.

„Það væri ekkert hægt að segja við því ef það kæmu þrjú mörk upp úr þessum færum. Á meðan erum við ekki í neinum opnum færum,“ sagði Bjarni en umræðuna og frammistöðu Hákonar má sjá hér að neðan.

Klippa: Hákon maður leiksins með magnaðar vörslur

Ekki var að sjá að það bitnaði á Hákoni að hafa ekkert spilað með liði sínu Brentford á leiktíðinni og var hann afar beittur í öllum sínum aðgerðum.

„Hann fær ekkert mikið að gera en þetta eru þó þrjú dauðafæri og hann ver þau öll,“ sagði Kári.

„Það er ekkert að gera hjá honum en svo koma þessi atvik og hann ver þau öll. Svo greip hann inn í, kom út og kýldi boltann vel út fyrir teiginn og greip boltann líka tvisvar, þrisvar og kom strax í gang skyndisókn með frábærum köstum. Hákon var langbesti íslenski leikmaðurinn á vellinum,“ sagði Bjarni.

Elías Rafn Ólafsson var aðalmarkvörður Íslands í undankeppni HM síðasta haust og hefði eflaust staðið í markinu á laugardaginn ef hann hefði ekki meiðst fyrir viku. Nú er orðið ljóst að Elías verður lengi frá, vegna aðgerðar á nýra, og miðað við frammistöðu Hákonar á laugardag verður erfitt að velta honum úr sessi.

„Að einhverju leyti kom það mér á óvart þegar hann missti stöðuna. Ekki út af því hvernig gengið hefur með markmannsstöðuna hingað til. En núna sýnir hann að þetta verður ærið verkefni þegar aftur verður keppt um stöðuna á milli þeirra tveggja. Hann var frábær,“ sagði Bjarni.


Tengdar fréttir

Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“

Kári Árnason, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður Íslands í fótbolta gagnrýndi orkustigið í leik íslenska landsliðsins í jafntefli gegn Eistlandi í gær. Hann spyr sig hvers vegna menn sína ekki jafn mikinn anda og baráttu eins og má sjá í Instagram myndböndum frá æfingu liðsins. 

Þórir Jóhann kallaður inn í landsliðið

Þórir Jóhann Helgason, leikmaður Venezia á Ítalíu, hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðið sökum meiðsla sem Albert Guðmundsson varð fyrir í leik liðsins gegn Eistlandi í gær.

Albert ekki meira með ís­lenska lands­liðinu

Albert Guðmundsson verður ekki meira með íslenska landsliðinu í yfirstandandi verkefni liðsins í Þjóðadeild UEFA vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik liðsins í gær. Íslenska landsliðið heldur út til Lúxemborgar í dag.

Einkunnir Íslands: Vonbrigðarbyrjun í Þjóðardeildinni

Íslenska karlalandsliðið mætti Eistlandi í fyrstu umferð C-deild Þjóðardeildarinnar í dag. Það er óhætt að segja að úrslitin hafi verið mikil vonbrigði eftir 1-1 jafntefli á Laugardalsvelli í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×