„Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Valur Páll Eiríksson skrifar 30. september 2026 08:44 Ferran Soriano, framkvæmdastjóri Manchester City, ásamt Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformanni félagsins. vísir/getty Framkvæmdastjóri Manchester City, Ferran Soriano, hefur haldið því fram að sektardómurinn yfir félaginu sé afleiðing „samsæri ensku úrvalsdeildarinnar“ og að félagið muni áfrýja úrskurðinum.
Óháð nefnd komst að þeirri niðurstöðu í gær að City væri sekt um öll ákæruatriði sem tengjast brotum á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar á árunum 2009–10 til 2017–18. Orðalag í dómnum var sérlega harðort í garð City sem sagt var fara vísvitandi framhjá reglum með fullri vitund og einnig sagt hafa lagt sig fram við að trufla og skemma rannsókn ensku úrvalsdeildarinnar á brotunum. Manchester City sagði í yfirlýsingu munu áfrýja „á þeim forsendum að álitið innihaldi augljósar efnislegar villur, bæði í lögum, grundvallarreglum og staðreyndum, og sé ótraust.“ Ferran Soriano gat lítið svarað spurningum blaðamanna sem reyndu að ná af honum tali á fundi stjórnenda íþróttafélaga í Kaupmannahöfn í gær. Í myndbandsskilaboðum til starfsmanna félagsins fór Soriano hins vegar vel yfir mál og sagði: „Skjal hefur verið gert opinbert með áliti frá nefnd ensku úrvalsdeildarinnar sem er neikvætt fyrir hagsmuni okkar.“ „Ég vil útskýra nákvæmlega hvað þetta er, hver næstu skref eru og hvernig við munum halda áfram að verja félagið og að lokum fá uppreisn æru í þessu ferli,“ „Þetta hefur staðið svo lengi yfir að það er mikilvægt að minna okkur á að allt mál ensku úrvalsdeildarinnar gegn okkur byggist á einni rangri ásökun; að persónulegir fjármunir eigandans hafi á einhvern hátt og í leyni verið settir inn í félagið í gegnum styrktaraðila frá Abu Dhabi,“ segir Soriano og öll gögn í dómnum benda til nákvæmlega þess. 🚨 | BREAKING: #ManCity CEO Ferran Soriano has addressed staff over the guilty verdicts, insisting the club will fight through every available legal avenue:“The whole Premier League case against us is based on a single false accusation.” pic.twitter.com/63Pf9fsvGw— City Chief (@City_Chief) September 29, 2026 Hann segir þó um hreina lygi að ræða í myndskeiðinu sem lekið var til fjölmiðla frá starfsmönnum félagsins í gær. „Þetta er einfaldlega ekki satt. Óhrekjanleg sönnunargögn hafa verið lögð fyrir nefnd ensku úrvalsdeildarinnar sem sýna að þetta gat ekki gerst og gerðist ekki,“ „Þar á meðal eru bankayfirlit, millifærslur, vitni og allt sem nauðsynlegt er til að sýna fram á með óyggjandi hætti að peningarnir komu ekki frá eigandanum,“ „Allar aðrar rangar ásakanir sem hafa verið bornar á okkur og verið markaðssettar og kynntar af hörku, eiga uppruna sinn í þessari einu, einföldu, miðlægu og algjörlega röngu ásökun,“ segir Soriano sem segir rándýrt lögfræðingateymi City, sem hefur unnið að málinu árum saman, hreinlega í áfalli yfir dómnum sem sé samsæri af hálfu ensku úrvalsdeildarinnar. „Okkur og lögfræðingum okkar til mikillar undrunar, eftir næstum tvö ár, hefur nefnd ensku úrvalsdeildarinnar gefið út álit sem styður samsæri ensku úrvalsdeildarinnar,“ segir Soriano og bætir við: „Til að gera það þurfti álitið í raun að hunsa umfangsmikil sönnunargögn sem félagið lagði fram til að komast að niðurstöðu sem er augljóslega röng,“ „Lögfræðingar okkar munu nú leggja fram áfrýjun sem sýnir fram á að álitið innihaldi augljósar efnislegar villur í lögum, grundvallarreglum og staðreyndum, og að það sé ótraust,“ segir Soriano en City hefur til 5. október að áfrýja dómnum. Verið í þessari stöðu áður Árið 2020 tókst City að fá tveggja ára banni frá evrópskum félagsliðakeppnum hnekkt, sem UEFA hafði sett á fyrir brot á reglum um fjárhagslega háttvísi (Financial Fair Play), eftir að hafa vísað málinu til Alþjóðaíþróttadómstólsins (CAS). „Munið að við höfum verið í þessari stöðu áður,“ bætti Soriano við. „Árið 2020 vorum við einnig ranglega dæmd fyrir mörg af sömu málum. Við áfrýjuðum til óháðs aðila, CAS, og við unnum,“ „Við munum nú vinna af fullum krafti. Við munum einbeita okkur að hinu óháða áfrýjunarferli og einnig öllum öðrum lagalegum leiðum sem okkur standa til boða til að vinna málið,“ segir Soriano. „Og við munum grípa til allra nauðsynlegra aðgerða til að vernda félagið og krefjast bóta frá hverjum þeim aðila sem reynir að skaða það, nú og í framtíðinni,“ „Ég veit að þetta getur verið nokkur truflun, en vinsamlegast haldið áfram að einbeita ykkur að starfi okkar og að hugsa um stórfjölskyldu City, eins og við gerum alltaf,“ segir Soriano og bætir við að endingu: „Mjög fljótlega munum við líta til baka á þetta og viðurkenna það sem enn eitt skiptið í sögu okkar þegar við tókumst á við mótlæti og sigruðumst á því saman.“
Manchester City Fjármál Manchester City til rannsóknar Enski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Sport Fleiri fréttir Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjá meira