Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Birgir Olgeirsson skrifar 1. október 2026 12:07 Ingvar Smári Birgisson, stjórnarmaður í RÚV, telur að sniðganga Eurovision geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar og Alþingis. Vísir/Vilhelm Ríkisfyrirtæki geta ekki rekið eigin utanríkisstefnu, segir Ingvar Smári Birgisson, einn þriggja stjórnarmanna RÚV sem leggjast gegn áframhaldandi sniðgöngu Eurovision. Hann telur varhugavert að stjórn félagsins taki ákvörðun sem geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar og Alþingis.
Sex af níu stjórnarmönnum beindu því til útvarpsstjóra á fundi í gær að tilkynna Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, að RÚV tæki ekki þátt í Eurovision 2027 nema Ísrael yrði meinuð þátttaka. Meirihlutinn vísar til starfsreglna stjórnarinnar um að hún taki ákvarðanir sem telja verði óvenjulegar, sérstakar eða mikilsverðar í málefnum félagsins. Stefán Jón Hafstein, stjórnarformaður RÚV, og Stefán Eiríksson útvarpsstjóri. Meirihluti stjórnarinnar vill að RÚV sitji hjá í Eurovision á næsta ári nema Ísrael verði meinuð þátttaka.Vísir/Vilhelm Fyrri áskorun til EBU um að vísa Ísrael úr keppninni er jafnframt ítrekuð. Ingvar bókaði andstöðu ásamt Eiríki Svavarssyni og Unni Brá Konráðsdóttur. Í bókun þeirra segir að það sé ekki í verkahring stjórnar RÚV að taka pólitískar ákvarðanir og að Eurovision eigi ekki að vera vettvangur pólitískra skilaboða milli ríkja. Vart aðskilin frá utanríkispólitík Ingvar segir í viðtali við fréttastofu að þátttaka Íslands í Eurovision sé sér ekki persónulegt kappsmál. Hann sé þó ósammála því að Ísland dragi sig úr keppninni á þessum forsendum. Hann bendir meðal annars á að Ísland taki þátt í íþróttamótum þar sem Ísrael sé einnig meðal keppenda. „En einn vinkill á þessu sem mér finnst ekki hafa verið mikið ræddur líka er að mér finnst sjálfum einkennilegt að stjórn ríkisfyrirtækis taki ein og óstudd ákvörðun sem verður vart aðskilin frá utanríkispólitík Íslands.“ Hann telur ástæðu til að skoða hvar mörk ákvarðanavalds stjórnarinnar liggi. „Þetta er auðvitað yfirlýsing ríkisfyrirtækis sem að, hérna, ég held að margir skilji bara sem yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og þingsins og þetta er auðvitað svona varhugaverð þróun og er tilefni til þess að skoða nánar hvar mörkin í þessu liggja.“ Holland hefur staðfest endurkomu Ísland, Írland, Holland, Spánn og Slóvenía sniðgengu Eurovision í vor vegna þátttöku Ísraels. Af þessum fimm löndum hefur Holland eitt staðfest endurkomu á næsta ári. NPO, sameiginleg samtök hollenskra almannaútvarpsstöðva, mun hafa umsjón með hollenska framlaginu í ár. AVROTROS, sem hefur áður séð um hollenska framlagið, heldur hins vegar fast við sniðgönguna. Írska ríkisútvarpið RTÉ tilkynnti 17. september að Írland tæki ekki þátt í Eurovision 2027. Landið heldur því sniðgöngunni áfram annað árið í röð. VÆB-bræður, Matthías Davíð og Hálfdán Helgi Matthíassynir, voru síðustu fulltrúar Íslands í Eurovision. Þeir fluttu lagið Róa í keppninni árið 2025.Vísir Á Spáni sagðist José Pablo López, forseti RTVE, 22. september ætla að leggja til við stjórnina að landið sæti áfram hjá. Í viðbrögðum EBU sama dag kemur fram að sambandið bíði lokaákvörðunar stjórnar RTVE. Spánn hefur því ekki staðfest endurkomu. Slóvenía hefur heldur ekki tekið lokaákvörðun. Í svörum RTV Slovenija, sem birtust á Evrovizija.com 22. september, segir að stöðin hafi ekki tilkynnt EBU um áform um þátttöku. Viðræður standi yfir og fjárhagur stöðvarinnar hafi áhrif á ákvörðunina. Alls hafa 31 land lýst áformum um þátttöku í Eurovision 2027, samkvæmt bráðabirgðayfirliti Eurovisionworld. Endanlegur þátttakendalisti EBU hefur ekki verið birtur. Ríkisstjórnin kunni að vera sátt við ákvörðunina Ingvar segir það vera ríkisstjórnarinnar að ákveða hvort hún láti málið til sín taka. „Ríkisfyrirtæki geta auðvitað ekki bara rekið sína eigin utanríkisstefnu en það kann vel að vera að þessi ákvörðun sé bara algjörlega í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar og þá kannski er hún bara sátt við að þetta sé svona.“
Ríkisútvarpið Eurovision Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Sjá meira