„Við þurfum að gera margt betur“ Siggeir Ævarsson skrifar 3. október 2026 21:48 Þrátt fyrir titil og sigur í kvöld er margt sem Jakob vill að sínir menn geri betur í næsta leik, sem er einmitt líka gegn Grindvíkingum í Grindavík Vísir/Guðmundur Þórlaugarson KR-ingar eru meistarar meistaranna eftir öruggan sigur á Grindavík í kvöld en Jakob Sigurðsson, þjálfari KR, segir margt þurfa að laga í leik liðsins. „
Þetta var jafnt í fyrri hálfleik. Grindavík gerðu vel og margt sem ég var ósáttur við, hvernig við spiluðum í fyrri hálfleik. Svolítið ánægður með samt að við stigum upp og reyndum að gefa aðeins meira í. Einbeittari og „agressívari“, sérstaklega varnarlega.“ KR-ingar misstu Þóri Guðmund meiddan út af eftir aðeins um fimm mínútur en Jakob var óviss með stöðuna á honum. „Ég bara veit það ekki. Hann fann eitthvað til í kálfanum og svo bara sjáum við til. Ég hef ekki hugmynd!“ Friðrik Anton Jónsson átti frábæran leik í kvöld og setti sjö þrista. Er þetta það sem koma skal í vetur? „Vonandi og bara meira! Frikki er mjög góð skytta, ég held að það viti það allir í þessari deild. Ef hann fær opið skot er það gott skot fyrir okkur og skot sem við viljum að hann taki, alltaf. Hann fékk fullt af þeim í kvöld og náði að setja einhver sjö stykki og það er bara mjög jákvætt.“ Það dró mjög greinilega af Grindvíkingum eftir því sem leið á leikinn og Jakob tók undir að breidd KR liðsins hafi vegið þungt í kvöld. „Við erum með mjög góða breidd og marga stráka á bekknum sem standa sig gríðarlega vel á æfingum og æfa mjög vel. Þetta er bara partur af okkar prógrammi sem við erum með í KR. Við erum með annað verkefni, KV í 1. deildinni sem þessir strákar njóta góðs af. Þeir eru hungraðir og fá fullt af spilatíma þar. Þeir bíða eftir tækifærinum hér og hafa verið að grípa þau. Hafa staðið sig gríðarlega vel á undirbúningstímabilinu í þeim leikjum og sýndu það líka hér í kvöld.“ Það er skammt stórra högga á milli hjá KR en liðið mætir aftur til Grindavíkur næsta föstudag þegar deildin rúllar af stað. „Ég býst við aðeins öðruvísi Grindavíkurliði á föstudaginn. Við þurfum að gera margt betur. Við þurfum að halda áfram að bæta okkur. Sérstaklega eins og við vorum í fyrri hálfleik. Þurfum að vera aðeins meira „on it“ og setja tóninn mun fyrr í leiknum á föstudaginn.“
Bónus-deild karla KR Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Sjá meira