Fótbolti

„Þetta er á­stæðan fyrir því að allir hata Banda­ríkin“

Sindri Sverrisson skrifar
Jesse Marsch er Bandaríkjamaður en stýrir landsliði Kanada.
Jesse Marsch er Bandaríkjamaður en stýrir landsliði Kanada. Getty/Omar Vega

Jesse Marsch, landsliðsþjálfari Kanada, segir að Bandaríkjamenn séu aldir upp við þá hugmynd að þeir séu öðrum þjóðum fremri og eigi skilið sérmeðferð. Hann segir þetta meðal annars hafa birst í viðbrögðum við umdeildri ákvörðun FIFA á HM í fótbolta í sumar.

Marsch, sem er sjálfur Bandaríkjamaður en hefur stýrt kanadíska landsliðinu frá árinu 2024, ræddi málið í ítarlegu viðtali við The Guardian fyrir leik Kanada og Bandaríkjanna.

„Áróðrinum hefur verið hellt yfir okkur Bandaríkjamenn frá unga aldri,“ sagði Marsch. Hann vísaði þar til þeirrar hugmyndar að Bandaríkin séu besta land heims og eigi að vera ráðandi á öllum sviðum.

„Þannig að þegar hlutir gerast og okkur finnst við ekki hafa stjórn á þeim … þá finnst okkur við eiga skilið að komið sé öðruvísi fram við okkur vegna þess að við erum Bandaríkjamenn,“ sagði Marsch.

Hann sagði þetta raunar vera það sem færi hvað mest í taugarnar á umheiminum varðandi Bandaríkjamenn.

Vísaði til Balogun-málsins

Marsch var sérstaklega spurður út í þá ákvörðun FIFA að ógilda rauða spjaldið sem Folarin Balogun fékk í útsláttarkeppni HM. Balogun gat þar með tekið þátt í næsta leik Bandaríkjanna og hefur þessi ákvörðun verið harðlega gagnrýnd.

Marsch telur að sambærileg ákvörðun hefði vart verið tekin fyrir aðra þjóð.

„Þetta hefði aldrei gerst hjá öðru landi í heiminum,“ sagði hann og bætti við að málið hefði sýnt hversu mikil áhrif Bandaríkin hefðu.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur viðurkennt að hafa haft samband við Gianni Infantino, forseta FIFA, vegna málsins. Infantino hefur hins vegar neitað því að símtalið hafi haft áhrif á ákvörðunina.

Marsch segir málið hafa breytt umræðunni um Bandaríkin á einu augnabliki.

„Þetta sannaði það. Bandaríkin höfðu átt gott HM og gengið vel. Allt það breyttist á einu augnabliki.“

„Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin. Og Bandaríkjamenn vita það ekki ef þeir yfirgefa aldrei landið,“ sagði Marsch.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×