Lífið

Elegant herrar selja perlu í 101

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Einar Guðmundsson og Aron Freyr Heimisson hafa sett íbúð sína á Bergþórugötu á sölu.
Einar Guðmundsson og Aron Freyr Heimisson hafa sett íbúð sína á Bergþórugötu á sölu.

Aron Freyr Heimisson og Einar Guðmundsson eru eitt smartasta par landsins og reka saman innanhússvöruverslunina Mikado Reykjavík. Þeir hafa nú sett einstaklega smekklega íbúð sína á Bergþórugötu á sölu.

Hjónin vinna mikið saman en samhliða rekstri á Mikado eru þeir með veitingastaðinn Bari í Hafnarstræti. Það er ekki að undra að þessir menningarvitar hafi verið búsettir lengi í 101.

Íbúðin sem þeir eru að selja er á Bergþórugötu 59 og er um að ræða mikið endurnýjaða fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð. 

Eignin er 105,8 fermetrar að stærð og ásett verð tæplega hundrað milljónir. Hér má nálgast nánari upplýsingar um hana. 

Tvær rúmgóðar samliggjandi stofur eru í íbúðinni.TORG fasteignasala
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni með möguleika á þriðja.TORG fasteignasala
Rúmgott hjónaherbergi.TORG fasteignasala
Einstaklega smekklegir kalkveggir.TORG fasteignasala
Björt stofa og einstaklega fallega innréttuð.TORG fasteignasala
Hvítar flísar og flotað gólf.TORG fasteignasala
Eldhúsið var endurbætt 2024-2025.TORG fasteignasala





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.