Fótbolti

Frakk­land - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum

Andri Broddason skrifar
Olise skoraði gegn Belgum í Brussel á dögunum. Endurtekur hann leikinn í kvöld?
Olise skoraði gegn Belgum í Brussel á dögunum. Endurtekur hann leikinn í kvöld? Getty

Frakkland vann endurkomusigur á Belgíu í Þjóðadeildinni í kvöld. Belgar komust yfir snemma í leiknum og náðu að halda forystunni lengi. Frakkar náðu þó að skora undir lok leiks með stuttu millibili og bjarga 4-1 sigri.

Strax og leikurinn hófst var ljóst að Frakkar væru sterkari aðilinn í leiknum. Þeir héldu vel í boltann og stjórnuðu spili leiksins og fengu Belgar fá tækifæri til að sækja almennilega.

Eftir rúmlega hálftíma leik unnu Belgar boltann og náðu að keyra hratt á heimamennina. Dodi Lukebakio komst inn fyrir vörn Frakka og skoraði með yfirveguðu skoti fram hjá Guillaume Restes í marki Frakklands. Svekkjandi byrjun fyrir Restes sem var að spila sinn fyrsta landsleik og er yngsti markmaður í sögu franska landsliðsins.

Þrátt fyrir að vera undir voru Frakkar mun betri í leiknum en þeim gekk erfiðlega að koma boltanum inn. Zinedine Zidane, þjálfari Frakklands, ákvað að gera nokkrar skiptingar sem áttu eftir að breyta gangi leiksins.

Desire Doue var aðeins búinn að vera inni á vellinum í fimm mínútur þegar hann náði loksins að jafna metin fyrir Frakkland. Aðeins fjórum mínútum síðar náði Rayan Cherki að koma Frökkum í forystu eftir undirbúning frá Michael Olise en þeir komu báðir inn á völlinn á 60. mínútu.

Olise náði svo að skora tvö mörk undir lok leiks og náði hann því að leggja upp eitt mark og skora tvö eftir að hafa komið inn á völlinn sem varamaður. Sömuleiðis náði Doue að leggja upp tvö mörk og skora eitt.

Frakkar sitja því á toppi 1. riðils í A-deild Þjóðadeildarinnar með þriggja stiga forskot á Ítalíu sem er í öðru sæti. Ítalía tók á móti Tyrklandi á sama tíma og náði liðið að vinna 3-1 á heimavelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×