Innlent

Kjaravaktin: Ögur­stund rennur upp

Árni Sæberg skrifar
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA.
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA. Vísir

Frestur til að segja upp kjarasamningum vegna forsendubrests rennur út klukkan 16 í dag. VR hyggst að óbreyttu slíta kjarasamningum en fundahöld standa þó yfir. Vísir fylgist með þróun mála í fréttavakt.

Forsenduákvæði kjarasamninganna brast í ágúst eftir að verðbólgan mældist 5,6 prósent. Þeir sem komu að samningunum fengu þá heimild til klukkan fjögur í dag til að segja upp kjarasamningunum.

Hvort náist að semja fyrir það er óljóst en Halla Gunnarsdóttir formaður VR sagði í viðtali við Vísi í morgun að Samtök atvinnulífsins hefðu ekki „fært sig eina litla tommu“ til að koma til móts við VR, Fagfélögin og LÍV. Breiðfylking stéttarfélaga hefur þegar samið við SA um framlengingu samninga. Slíti VR samningum geta opinberu stéttarfélögin gert slíkt hið sama í kjölfarið.

Fylgst verður með þróun mála í vaktinni hér að neðan:




Fleiri fréttir

Sjá meira
×